20. september 2016
Opinber vörn meistararitgerðar í lögfræði

Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, meistaranemi í lögfræði, ver ritgerð sína föstudaginn 23. september kl. 15.00 í Lögbergi 101. Heiti ritgerðarinnar er Magn er ekki sama og gæði. Áhrif Sameinuðu þjóðanna á inntak mannréttindaákvæða stjórnarskráa eftir stríðsátök og mannréttindavernd í viðkomandi ríkjum.
Leiðbeinandi Auðar Tinnu var Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor og prófdómari er Þórdís Ingadóttir, dósent við Lagadeild HR.
Allir velkomnir. Léttar veitingar að lokinni vörn.

