Opinber vörn meistararitgerðar í lögfræði

Leó Örn Þorleifsson, meistaranemi og forstöðumaður Fæðingarorlofssjóðs varði meistararitgerð sína: Skerðingarreglur fæðingarorlofslaga, opinberlega, í Lögbergi 101 þann 10. maí sl. Leiðbeinandi Leós Arnar var Hafsteinn Dan Kristjánsson aðjúnkt. Prófdómari var Þorgeir Ingi Njálsson, dómstjóri við Héraðsdóm Reykjaness.
Ritgerðin fjallar um eftirlitshlutverk og heimildir Fæðingarorlofssjóðs/Vinnumálastofnunar og þau lagaákvæði sem miða að því að foreldri fái ekki hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því ber. Auk þess að gera grein fyrir gildandi rétti um þetta efni eru fæðingarorlofssjóðslög tekin til gagnrýninnar skoðunar með de lege ferende sjónarmið í huga. Bent er á vankanta á löggjöfinni og lagðar fram tillögur að úrbótum. Nánar tiltekið er fjallað um ákvæði um eftirlitshlutverk Vinnumálastofnunar, skerðingarákvæði, ákvæði um ósamrýmanleg réttindi, endurkröfuákvæði og viðurlagaákvæði fæðingarorlofsslaga.

