Skip to main content
21. febrúar 2016

Nýtt meistaranám í fjármálum

Nýtt meistaranám í fjármálum - á vefsíðu Háskóla Íslands

Í haust mun Háskóli Íslands hefja nýtt meistaranám í fjármálum.

MFin – meistaranám í fjármálum byggir á samvinnu Viðskiptafræðideildar og Hagfræðideildar, en báðar deildir hafa um árabil rekið sína eigin meistaralínu í fjármálum, þó með mismunandi áherslum. Annars vegar hefur Viðskiptafræðideild boðið upp á meistaranám í fjármálum fyrirtækja og hins vegar hefur Hagfræðideild boðið upp á meistaranám í fjármálahagfræði. Með MFin eru kraftar þessara tveggja deilda sameinaðir.

Sérstaða þessa náms felst í því að náminu lýkur ekki með ritun meistararitgerðar heldur er í staðinn lögð áhersla á að þjálfa nemendur í að beita kenningum og aðferðum til þess að leysa hagnýt verkefni. Námið miðar að því að undirbúa nemendur fyrir fjölbreytt störf á fjármálamarkaði og gert er ráð fyrir að nemendur geti að námi loknu fengist við flókin viðfangsefni á sviði fjármála.

Námið nýtist því víða í atvinnulífinu en markmið þess er að búa nemendur sérstaklega undir sérhæfð störf sem lúta að fjármálastjórn og sérfræðivinnu á fjármálasviðum fyrirtækja og stofnana eða til ýmissa starfa í fjármálafyrirtækjum eins og bönkum, sparisjóðum, verðbréfafyrirtækjum, tryggingafélögum og lífeyrissjóðum.

Umsjón með náminu hafa, Ásgeir Jónsson, forseti Hagfræðideildar og Hersir Sigurgeirsson, dósent við Viðskiptafræðideild.

Hersir Sigurgeirsson og Ásgeir Jónsson