Skip to main content
26. febrúar 2015

Ný útgáfa: Fatherhood in the Nordic Welfare States

Guðný Björk Eydal, prófessor við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, er annar tveggja ritstjóra bókarinnar Fatherhood in the Nordic Welfare States - Comparing Care Policies and Practice sem kom út hjá hinu virta forlagi Policy Press á dögunum. Bókin er samstarfsverkefni Guðnýjar og Tine Rostgaard, prófessors við Álaborgarháskóla í Danmörku, og er viðfangsefni hennar norrænir feður og velferðarkerfi á Norðurlöndum. Bókinni er kaflaskipt eftir þremur þemum: Lagaumhverfi á Norðurlöndum sem snertir feður og fjölskyldulíf, feður í hversdeginum og á vinnustað, og loks föðurhlutverkið í fjölbreytilegum fjölskyldum.

Umsagnir um bókina:

“This comprehensive volume provides rich and theoretically grounded empirical analyses of Nordic policies and practices.” Professor Ann Orloff, Northwestern University, US
“A fascinating, wide-ranging and critical look at fatherhood in the Nordic world, covering home, work and social policy, addressing growing diversity in these countries and celebrating a vibrant research scene.” Emeritus Professor Peter Moss, Institute of Education University of London.

 

Forsíða bókarinnar Fatherhood in the Nordic Welfare States
Forsíða bókarinnar Fatherhood in the Nordic Welfare States