Ný stjórn Viðskiptafræðistofnunar

Ný stjórn Viðskiptafræðistofnunar tók til starfa nýlega, en kjörtímabil hennar er tvö ár. Nýr formaður stjórnar er Sveinn Agnarsson dósent og varaformaður er Svala Guðmundsdóttir dósent. Aðrir í stjórninni eru lektorarnir Lára Jóhannsdóttir, Magnús Þór Torfason og Friðrik Larsen.
Sveinn, Svala og Lára hafa áður setið í stjórninni, en Magnús og Friðrik eru nýir. Með stjórninni vinna starfsmenn Viðskiptafræðistofnunar, þau Magnús Pálsson forstöðumaður og verkefnisstjórarnir Gyða Hlín Björnsdóttir og Lena Heimisdóttir.
Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands er fræðslu- og rannsóknastofnun sem er starfrækt í umboði Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands. Fjölbreytt nám er í boði hjá stofnuninni, bæði fyrir þá sem leita að grunnmenntun í háskóla með vinnu, t.d. viðskiptafræði með vinnu, og þá sem hafa áhuga á að bæta við framhaldsnámi, t.d. MBA.

