Ný fundaröð Háskóla Íslands um forsetaembættið

Stjórnmálafræðideild, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, Sagnfræðistofnun og Lagastofnun við Háskóla Íslands efna til fundaraðar um forsetaembættið í aðdraganda forsetakosninga á Íslandi. Fyrsti fundurinn var föstudaginn 18. mars kl. 12.
Yfirskrift fundaraðarinnar er „Forseti Íslands: Hvers konar embætti er þetta?“ Þar munu fræðimenn við Háskóla Íslands greina og ræða um embætti forseta Íslands út frá sjónarhorni stjórnmála, lög- og sagnfræði.
Á fyrsta fundinum föstudaginn 18. mars ræddu Björg Thorarensen, prófessor við Lagadeild, og Stefanía Óskarsdóttir, dósent við Stjórnmálafræðideild, hlutverk og stöðu forsetaembættisins í stjórnskipun Íslands. Þær fjölluðu um stjórnskipunarlega stöðu embættisins við lýðveldisstofnun og hvernig hún hefur þróast undanfarin misseri. Deilt hefur verið um hvernig ber að túlka ákvæði stjórnarskrárinnar um embætti forseta Íslands og skiptar skoðanir hafa verið um hvernig forsetinn beitir valdheimildum embættisins.
Umræðan um hlutverk og völd forseta Íslands hefur verið vaxandi á undanförnum árum og ýmist er talað um pólitískan forseta eða forseta sem sameiningartákn þjóðarinnar. Má búast við að umræðan um hlutverk og valdsvið embættisins verði enn fyrirferðarmeiri nú í aðdraganda forsetakosninganna og að skiptar skoðanir verði, bæði meðal frambjóðenda og þjóðarinnar, um hvernig embætti forseta Íslands eigi að þróast á næstu árum.
Fyrirlestur Bjargar og Stefaníu hófst kl. 12 og fór fram í stofu 101 í Odda í Háskóla Íslands.
Alls verða fjórir hádegisfundir í fundaröðinni fram að forsetakosningunum 25. júní nk. Dagskrá fundaraðarinnar er sem hér segir:
• 15. apríl: Forsetaembættið sem sameiningartákn. Guðni Th. Jóhannesson, dósent við Sagnfræði- og heimspekideild, ræðir hugmyndina um forseta Íslands sem sameiningartákn þjóðarinnar. Þátttakendur í pallborðsumræðum verða Hulda Þórisdóttir, lektor við Stjórnmálafræðideild, og Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við Lagadeild.
• 18. maí: Væntingar til forsetaembættisins. Ragnheiður Kristjánsdóttir, prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild, og Birgir Hermannsson, aðjúnkt við Stjórnmálafræðideild, ræða um væntingar til forsetaembættisins, m.a. út frá lýðræðishugmyndum og í alþjóðlegum samanburði.
• 23. júní: Forseti Íslands eftir kosningarnar 2016: Hverskonar embætti verður það? Á fundinum verður rýnt í skoðanakannanir um gengi frambjóðenda og hugmyndir þeirra um hlutverk og völd forseta Íslands. Einnig verður fjallað um hvernig embættið muni þróast á næstum árum með nýjum forseta. Þátttakendur í pallborðsumræðunum: Ólafur Þ. Harðarson, prófessor við Stjórnmálafræðideild, Stefanía Óskarsdóttir, dósent við Stjórnmálafræðideild, Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði við Stjórnmálafræðideild, og Guðmundur Hálfdánarson, forseti Hugvísindasviðs og prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild.
Erindin í hádegisfundaröðinni eru öllum opin.

