Ný bók Gunnars Helga og opið málþing

Föstudaginn 30. janúar síðastliðinn héldu Samband íslenskra sveitarfélaga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála opið málþing í tilefni af útkomu nýrrar bókar dr. Gunnars Helga Kristinssonar Hin mörgu andlit lýðræðis - þáttaka og vald á sveitarstjórnarstiginu. Málþingið var haldið í Norræna húsinu og bar yfirskriftina Er íbúalýðræði leiðin til betri stjórnhátta í íslenskum sveitarfélögum? Funarstjóri var Halla Sigríður Steinólfsdóttir, varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og varaoddviti sveitarstjórnar í Dalabyggð.
Upptökur frá málþinginu má nálgast hér.
Er íbúalýðræði leiðin til betri stjórnhátta í íslenskum sveitarfélögum? Þeirri spurningu er velt upp í nýrri bók dr. Gunnars Helga Kristinssonar. Hægt verður að kaupa bókina við upphaf málþingsins. Í bókinni er gerð grein fyrir stórri rannsókn á lýðræðis- og valdakerfum íslenskra sveitarfélaga sem framkvæmd var við Háskóla Íslands á árunum 2008-2012.
Á undanförnum árum hafa hugmyndir um íbúalýðræði átt vaxandi fylgi að fagna á Íslandi. Sumir sjá í íbúalýðræði mótvægi við valdamikla stjórnmálaflokka og bæjarstjóra sem stundum eru taldir starfa í fullmiklu návígi við áhrifamikil fyrirtæki og verktaka. Íbúalýðræði gæti, samkvæmt því, skapað betra jafnvægi milli sérhagsmuna og almannahags við stjórnun sveitarfélaga.
Gunnar Helgi tekur að hluta undir það sjónarmið en bendir jafnframt á að veikleikar í stjórnkerfum sveitarfélaganna kalli á mun fjölþættari umbætur. Góðir stjórnhættir kalla ekki síður á sterkt fulltrúalýðræði og aðhald frá faglegri stjórnsýslu og landsstjórninni en aukna þátttöku íbúa. Ofuráhersla á íbúalýðræði felur í sér hættu á ofmati á kostum þeirrar aðferðar og vanmat á mikilvægi annars konar umbóta.

