15. mars 2016
Ný bók: Challenges to European Welfare Systems

Bók um verkefni og viðbrögð evrópsku velferðarkerfanna í kjölfar kreppunnar árið 2008 var nýlega gefin út af Springer forlaginu. Í bókinni fjalla fræðimenn frá 30 Evrópuríkjum um hvernig kreppan hafði áhrif á velferðarkerfin og hver staða þeirra er í kjölfarið.
Í bókinni er kafli um íslenska velferðarkerfið og kreppuna sem hér varð eftir Guðnýju Björk Eydal, prófessor í félagsráðgjöf, og Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði.
Bókinni er ritstýrt af Klaus Schubert prófessor og félögum frá Münster Universität.

