Skip to main content
10. mars 2016

Nemendur námskeiðs um SÞ taka þátt í IceMUN ráðstefnu

""

Nemendur í námskeiðinu Sameinuðu þjóðirnar: Stofnanir og umbætur tóku þátt í IceMUN-ráðstefnu dagana 19.-20.febrúar sl. en MUN stendur fyrir Model United Nations, eftirlíkingu af starfi hinna ýmsu stofnana Sameinuðu þjóðanna, allt frá öryggisráðinu til nefnda allsherjarþingsins. Efnt var til ráðstefnunnar í tengslum við umfjöllun í námskeiðinu um öryggisráð SÞ og ákvarðanir þess.

Á ráðstefnunni var flóttamannavandi Evrópu ræddur í uppsettu öryggisráði. Ýmsar lausnir voru ræddar og kom ráðið sér að lokum saman um ályktun sem gefin var út í lok dags. Nemendahópurinn tók málefnið föstum tökum og lagði fram góðar lausnir á erfiðu málefni.

MUN eða Model United Nations felur í sér að þátttakendur eru í forsvari fyrir ákveðna þjóð, sem einnig er aðildarríki Sameinuðu þjóðanna, og verður stefna og skoðanir þessarar þjóðar að endurspeglast í framkomu og vinnu þeirra þátttakenda sem hana leika þar sem þau líkja eftir hinum raunverulega heimi alþjóðlegra samningaviðræðna.

Fulltrúar Frakklands í Öryggisráðinu, þau Ingibjörg Auður Guðmundsdóttir og Ívar Vincent Smárason, voru að leik loknum kosin besta sendinefndin en fulltrúi frá Egyptalandi, Álfrún Perla Baldursdóttir, var valin besti fulltrúinn.

Frá IceMUN-ráðstefnunni.
""
""
""
""
Ívar Vincent Smárason, Áfrún Perla Baldursdóttir og Ingibjörg Auður Guðmundsdóttir með viðurkenningar sínar
Frá IceMUN-ráðstefnunni.
""
""
""
""
Ívar Vincent Smárason, Áfrún Perla Baldursdóttir og Ingibjörg Auður Guðmundsdóttir með viðurkenningar sínar