Nemendur HÍ styrktir til sumarnáms við Stanford

Tveir grunnnemar við Háskóla Íslands hafa hlotið styrk til sumarnáms við Stanford-háskóla í Bandaríkjunum, í svonefnt Stanford Summer International Honors Program (SSIHP). Sumarnámið við Stanford nær yfir átta vikur og þar taka nemendur námskeið sem þeir fá metin til eininga í námi sínu.
Þeir nemendur sem hljóta að þessu sinni styrk til námsins, frá Stanford og Háskóla Íslands, eru Esther Hallsdóttir, nemi í mannfræði, og Ísak Einar Rúnarsson, nemi í hagfræði. Auk þeirra halda sjö aðrir nemendur úr ýmsum deildum Háskóla Íslands til sumarnámsins í Stanford. Þetta er sjötta árið sem nemendur Háskóla Íslands fá þetta einstæða tækifæri við þennan víðkunna háskóla og hafa fyrri þátttakendur borið mikið lof á námið.
Stanford-háskóli í Kaliforníu er einn fremsti háskóli heims og býður upp á nám á breiðu sviði. Það er ótvírætt mikill fengur að samstarfi Stanford og Háskóla Íslands en samningur milli skólanna var undirritaður 2010. Sumarnámið við Stanford er í senn afar fjölbreytilegt og eftirsóknarvert fyrir nemendur Háskóla Íslands og gerir þeim kleift að kynnast einstöku vísindasamfélagi. Þess má geta að frumkvöðlar úr röðum Stanford-nemenda hafa átt þátt í stofnun margra heimsþekktra fyrirtækja.

