Meistararitgerð um mörk löggjafarvalds og dómsvalds

Forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, tók nýverið við meistararitgerð Ásgerðar Snævarr. Ástæðan fyrir afhendingu ritgerðarinnar er sú að Ásgerður hlaut styrk frá Alþingi til skrifanna en ritgerðin fjallar um mörk löggjafarvalds og dómsvalds.
Í tilkynningu frá Alþingi segir m.a.: „Meistararitgerð Ásgerðar er um lagahugtakið og inntak lagaákvæða með hliðsjón af mörkum löggjafarvalds og framkvæmdarvalds. Meginviðfangsefni ritgerðarinnar er að skoða hvort löggjöf geti falið í sér of víðtækt svigrúm til mats svo jafnist á við framsal lagasetningarvalds. Ritgerðin sýnir m.a. að í ýmsum tilvikum feli löggjafinn dómstólum löggjafarvald með því að setja svo matskenndar lagareglur að þær eftirláta dómstólum að afmarka inntak þeirra.“
Ásgerður brautskráðist með mag.jur. gráðu frá Lagadeild Háskóla Íslands þann 20.febrúar síðastliðinn, en ritgerðina skrifaði hún undir handleiðslu Hafsteins Þórs Haukssonar, dósents við deildina. Sjá nánar á vef Alþingis
Mynd af vef Alþingis - birt með leyfi höfundar

