Skip to main content
8. maí 2015

Lokaverkefni blaða- og fréttamennskunema rata víða

""

Nú stendur yfir sýning í Gallery Bakarí á Skólavörðustíg 40 á ljósmyndum eftir Ásdísi Ásgeirsdóttur en sýningin er lokaverkefni hennar í meistaranámi í blaða- og fréttamennsku. Sýningin stendur til 18.maí.

Lokaverkefni blaða- og fréttamennskunema rata víða. Í gær birtist í Kjarnanum önnur greinin af þremur um samfélagsmiðla,  eftir Hrefnu Rós Matthiasdóttir, en greinarnar eru verklegur hluti lokaverkefnis hennar. Fyrsta greinin birtist á miðvikudag og sú þriðja verður birt fljótlega í Kjarnanum. Þá verður á næstunni birt í tímaritinu Grapevine umfjölllun eftir Önnu Andersen  um áhuga íslenskra fjölmiðla á skrifum erlendra fjölmiðla um Ísland og Íslendinga.

Lokst má nefna að í síðustu viku kom út bókin Mannorðsmorðingjar eftir Björn Þorláksson, ritstjóra Akureyri vikublaðs, en handrit bókarinnar var verklegt lokaverkefni Björns í meistaranáminu í blaða- og fréttamennsku.

Ásdís Ásgeirsdóttir