Kynningarfundur: Hreyfanleiki og þverþjóðleiki.

Fimmtudaginn 29. september átti sér stað formleg opnun öndvegis verkefnisins „Hreyfanleiki og þverþjóðleiki“ sem styrkt er af Rannís.
Kristín Loftsdóttir, Unnur Dís Skaptadóttir og Sigurjón Baldur Hafsteinsson eru stjórnendur verkefnisins. Verkefnið leiðir saman fólk á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands sem rannsakar hreyfanleika til og frá Íslandi og þverþjóðleg tengsl Íslands við umheiminn. Aðalmarkmið verkefnisins er að skapa vettvang fyrir rannsóknasamstarf og kynningar á verkefnum. Það verður m.a. gert með málstofum, ráðstefnu og birtingu niðurstaðna. Verkefnið skiptist á þrjár megin stoðir sem snúa að 1) samfélagslegum og menningarlegum þáttum, 2) lagalegum og stofnunarlegum þáttum og 3) menningarpólitískum þáttum.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér verkefnið og verða mögulega þátttakendur eru velkomnir á kynningarfund fimmtudaginn 6. október. kl. 12:00-13:30 í Gimli 301.

