Kynning á meistararitgerðum í lögfræði

Þriðjudaginn 26. maí var haldin málstofa á vegum Lagadeildar Háskóla Íslands til kynningar á tveimur meistararitgerðum í lögfræði. Um framúrskarandi verkefni er að ræða sem fela í sér framlag til lögfræðilegrar umræðu. Mjög góð aðsókn var á þessa málstofu. Leiðbeinandi og fundarstjóri var Skúli Magnússon, héraðsdómari og formaður Dómarafélags Íslands.
Kristín Jónsdóttir kynnti verkefnið Að bera kennsl á sakborning – Sakbendingaraðgerðir í ljósi réttarsálfræðilegra rannsókna á áreiðanleika vitna. Verkefnið fjallar um gildandi reglur og dómaframkvæmd sakbendinga í ljósi réttarsálfræðilegra rannsókna um áreiðanleika minnisins.
Oddur Ástráðsson kynnti verkefnið Símahlustanir – Skilyrði, framkvæmd og eftirlit. Verkefnið fjallar um gildandi reglur svo og úrskurðarframkvæmd dómstóla um veitingu heimilda til hlustunar, meðal annars með hliðsjón af þeirri gagnrýni sem fram hefur komið gagnvart meðferð þessara mála hjá dómstólum á síðustu árum.
