Skip to main content
21. janúar 2021

Kennsla stafræn og kapp lagt á að röskun á starfi verði sem minnst

Kennsla stafræn og kapp lagt á að röskun á starfi verði sem minnst - á vefsíðu Háskóla Íslands

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, sendi meðfylgjandi tilkynningu á stúdenta og starfsfólk í dag í kjölfar vatnstjóns í byggingum skólans í nótt:

„Ljóst er að verulegt tjón hefur orðið í allmörgum byggingum Háskóla Íslands vegna mikils vatnsleka í nótt en allt kapp er lagt á að röskun á starfi skólans verði sem minnst. Eftirfarandi liggur fyrir í framhaldi af vinnu okkar í nótt og í morgun:

  • Öll kennsla sem fram hefur farið í húsakynnum Háskólatorgs og Gimli verður nú rafræn.
  • Jarðhæð í Gimli verður ónothæf næstu mánuði og sama gildir um fyrirlestrasali á jarðhæð á Háskólatorgi.
  • Hægt er að nálgast þjónustu á skrifstofu Félagsvísindasviðs símleiðis eða með rafrænum hætti fram að helgi.
  • Verið er að leita að hentugu húsnæði fyrir skrifstofu Félagsvísindasviðs og til staðkennslu vegna þeirra rýma sem ekki er unnt að nýta vegna vatnstjónsins.
  • Þjónustuborð á Háskólatorgi verður opið á skrifstofutíma. Fólk er þó hvatt til að nýta rafrænar þjónustuleiðir eins og nokkur er kostur.
  • Háma og Bóksalan á Háskólatorgi eru lokuð í dag en verða opnuð á morgun.
  • Stúdentakjallarinn er lokaður en verður opnaður á laugardag.
  • Starfsfólk í þeim byggingum þar sem vatnstjón varð, á Háskólatorgi, í Gimli, Lögbergi, Árnagarði og í Aðalbyggingu, hafi samband við næstu stjórnendur varðandi tilhögun vinnu í dag og út vikuna. 

Mér er efst í huga þakklæti til þeirra fjölmörgu, starfsfólks okkar og slökkviliðs, sem lögðu afar hart að sér í nótt við erfiðar aðstæður við að draga úr tjóni eins og unnt var.  

Þá vil ég þakka nemendum og starfsfólki skólans fyrir seiglu og samstöðu. 

Jón Atli Benediktsson, rektor“

Slökkviliðsmaður að störfum