Jólalegasta skrifstofan valin

Félagsvísindasvið fékk fulltrúa frá markaðs- og samskiptasviði skólans til þess að taka að sér að velja jólalegasta rýmið á skrifstofum sviðsins. Mikið kapp hafði greinilega hlaupið í starfsfólk og leyndi sér hvergi hvaða hátíð fer í hönd. Sumir höfðu tekið þetta alla leið, skrýddust skemmtilegum jólapeysum og dómnefnd var hvarvetna boðið upp á jólalegar veitingar.
Úr vöndu var að ráða. Vel var tekið á móti dómurunum þremur sem áttu í ærnum vanda við að velja á milli listilegra skreytinga. Eftir vandlega íhugun dómnefndar urðu úrslitin eftirfarandi:
Þótt forseti sviðsins hafi ekki unnið, enda meira í "less is more" stílnum, þá tróndi hann efstur á jólatré í vinningsskrifstofunni hjá Stellu Vestmann og Fríðu Björk Arnardóttur sem þáðu gullið að launum frá dómnefnd mark-aam.
Annað sæti hlaut Aðalbjörg Lúthersdóttir sem með skandinavískan stíl og þótti taka skreytingar í nýjar hæðir með stuttmynd sem varpað var á vegg skrifstofunnar. Þá þótt rýmið einstaklega vel nýtt.
Þriðja sæti fyrir óvenju frumlega skreytingu fengu þær Gyða Hlín Björnsdottir og Sif Sigfúsdóttir sen fóru mikinn í gróðurspildum á háskólasvæðinu og hjuggu skörð í hekkið. Skrifstofan þótt í senn jólaleg, stílhrein og smekkleg.
Við hvetjum starfsfólk Félagsvísindasviðs til að skoða skrifstofur sviðsins um jólin.
Gleðileg jól.

