Skip to main content
9. janúar 2015

Hrunið og fæðingarorlof: Áhrif á foreldra og löggjöf

Guðný Björk Eydal og Ingólfur V. Gíslason, kennarar við Félagsráðgjafardeild og Félags- og mannvísindadeild, eiga grein í síðustu útgáfu tímaritsins Íslenska þjóðfélagið. Greinin ber heitið „Hrunið og fæðingarorlof: Áhrif á foreldra og löggjöf“ og má nálgast í rafrænum aðgangi hér.

Útdráttur úr greininni:

Meðal afleiðinga bankahrunsins á Íslandi árið 2008 var verulegur niðurskurður á mörgum sviðum velferðarmála. Fæðingarorlof var einn þeirra þátta sem fékk að kenna á niðurskurðarhnífnum. Í þessari grein verður fjallað í stuttu máli um tilurð og einkenni laga um fæðingar- og foreldraorlof frá árinu 2000, nýtingu orlofsins frá setningu laganna og til 2007 og hvað einkenndi hana. Þá er fjallað um breytingar sem gerðar voru í kjölfar efnahagskreppu, m.a. um niðurskurð á hámarki greiðslna, og spurt hvaða áhrif þær kunna að hafa haft á tilhögun fæðingarorlofs og hag barnafjölskyldna. Byggt er annars vegar á gögnum frá Fæðingarorlofssjóði og hins vegar niðurstöðum rannsóknar sem framkvæmd var sumarið 2012 meðal foreldra sem eignuðust sitt fyrsta barn árið 2009. Í lokakafla verður fjallað um þær breytingar sem Alþingi samþykkti í desember 2012 á lögum um fæðingarorlof þar sem ákveðið var að auka í áföngum rétt beggja foreldra til fæðingarorlofs.