Háskólinn og Þjóðminjasafnið treysta samstarf sitt

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður undirrituðu á dögunum nýjan samstarfssamning milli Háskólans og Þjóðminjasafns Íslands sem felur í sér aukin tækifæri til rannsóknasamstarfs og rannsókna- og starfsnáms nemenda.
Þjóðminjasafn Íslands er eitt af höfuðsöfnum landsins og háskólastofnun sem hefur m.a. með höndum varðveislu og rannsóknir menningar¬minja. Með samstarfinu er ætlunin að nýta enn betur sérþekkingu og aðstöðu beggja stofnana til að efla bæði rannsóknir og styrkja menntun nemenda á þeim sviðum sem Þjóðminjasafnið starfar á, þar á meðal í fornleifafræði, sagnfræði, íslensku, safnafræði, þjóðfræði og menningarmiðlun svo dæmi séu nefnd. Samningur Háskólans og Þjóðminjasafnsins er til fimm ára og tekur við að eldri samstarfssamningi stofnananna tveggja.
Samkvæmt samningnum er einnig ætlunin að efla akademískt rannsóknastarf beggja stofnana, m.a. með sameiginlegum málþingum og ráðstefnuhaldi, öflun styrkja, samvinnu um rannsóknaverkefni, útgáfu og annarri miðlun. Þá er sérstök áhersla lögð á að treysta samstarf Háskólans og Þjóðminjasafnsins um rannsókna- og starfsnám nemenda og um námskeið á sameiginlegum sviðum. Gert er ráð fyrir að starfsmenn Þjóðminjasafnsins, sem uppfylla fagleg skilyrði, geti tekið að sér að leiðbeina nemendum við lokaverkefni við Háskóla Íslands og þá munu að lágmarki tíu nemendur fá aðstöðu til starfsnáms hjá Þjóðminjasafninu á ári hverju, m.a. við skrán¬ingu og meðhöndlun safngripa, í leiðsögn og móttöku safngesta og í sýningagerð og safnfræðslu. Enn fremur er deildum háskólans heimilt að bjóða völdum starfs¬¬mönn¬um Þjóðminjasafnsins að gegna akademískum gestastörfum að uppfylltum hæfiskörfum. Jafnframt er heimilt samkvæmt samningnum að tengja störf fastra kennara Háskólans starfi á Þjóðminjasafni.
Sérstök áhersla verður lögð á samnýtingu innviða hjá báðum stofnunum. Þannig mun Þjóðminjasafnið veita starfsmönnum Háskóla Íslands aðgang að safnkosti til rannsókna, kennslu og útgáfu og myndum Ljósmyndasafns Íslands í Þjóðminjasafni fyrir myndbirtingar í fræðilegum útgáfum eða við kennslu. Samningurinn tryggir jafnframt starfsmönnum 25% afslátt af árskorti Þjóðminjasafnsins og grunnnemar við skólann fá ókeypis aðgang að safninu gegn framvísun nemenda¬skír¬teinis. Að sama skapi mun Háskóli Íslands bjóða upp á aðstöðu fyrir starfsmenn Þjóðminjasafnsins til að sinna tímabundnum verkefnum og veita þeim aðgang að íþróttahúsi Háskólans ásamt því sem starfsmenn safnsins fá aðgang að mötuneyti skólans á sömu kjörum og gilda um starfsfólk skólans.
Lögð verður áhersla á mælanlegan árangur af samstarfi stofnananna en sérstök samstarfsnefnd hefur umsjón með samningnum. Í henni sitja þjóðminjavörður, sem er formaður, forsetar Hugvísindasviðs og Félagsvís¬indasviðs Háskóla Íslands auk tveggja fulltrúa sem rektor og þjóð¬minjavörður tilnefna. Verkefnisstjóri mun jafnframt starfa með samstarfsnefndinni.





