Fróðleiksferðir HÍ og FÍ á nýju ári

Með fróðleik í fararnesti er samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands þar sem mörg þúsund manns, ungir sem aldnir, hafa gengið í borgarlandinu og hlotið þrennt: góða útivist, fína hreyfingu og fróðleik í fararnesti frá vísindamönnum Háskólans. Þetta verkefni hófst fyrir tæpum tíu árum og hefur verið fróðlegt, hollt og spennandi og aukið áhuga almennings á vísindum og fræðum og á íslenskri náttúru sem víða leynist í borgarlandinu. Þetta verkefni mætir býsna vel stefnu skólans þar sem hvatt er til þess að margvísleg vísindamiðlun sé nýtt til að örva áhuga og þekkingu á vísindum.
Undanfarin ár hefur samstarfið að langmestu leyti verið í gegnum Ferðafélag barnanna, sem er angi innan FÍ, og því hefur vísindamiðlunin helst beinst að börnum og fjölskyldufólki. Þannig verður það áfram í vetur þegar verkefnið hefst á ný með miklum tilþrifum.
„Markmiðið með Ferðafélagi barnanna hefur ávallt verið að skapa skemmtilegan vettvang fyrir börn og fjölskyldur þeirra til að njóta útiveru, takast á við nýjar og spennandi áskoranir og hafa einafaldlega gaman af því að leika sér úti,“ segir Dalla Ólafsdóttir, sem leiðir Ferðafélag barnanna ásamt eiginmanni sínum, Matthíasi Sigurðarsyni. Hann segir að í verkefninu með Háskóla Íslands mæti flinkir og flottir vísindamenn frá Háskólanum sem bjóði upp á fróðleiksgöngur um fugla, skordýr, sveppi, fjöruna, eldfjöll, stríðminjar og stjörnurnar svo fátt eitt sé nefnt.
„Þetta eru gríðarlega vinsælar göngur ár eftir ár og mjög ánægjulegt að geta boðið börnum upp á að njóta náttúrunnar og fá fróðleikinn samhliða. Vísindamenn Háskólans hafa vakið mikla athygli í göngunum fyrir að draga fram mikilvægi rannsókna og vísindastarfs fyrir íslenskt samfélag, fyrir lífríkið okkar og umhverfið.“
Stjörnur með Stjörnu-Sævari
Nú er búið að raða upp fróðleiksgöngum fyrir næsta starfsár og verður byrjað strax í janúar 2020 á stjörnu- og norðurljósaskoðun með Sævari Helga Bragasyni. Markmið göngunnar er að hvetja fjölskyldur til þess að njóta náttúrunnar og himingeimsins þegar skilyrði til stjörnuskoðunar eru með besta móti.
Sævar Helgi, sem er stjörnufræðimiðlari hjá Háskólanum, mun lýsa því sem fyrri augu ber á kvöldhimninum. Hann er fyrir löngu orðinn landsþekktur fyrir miðlun sína á undrum himingeimsins og reyndar mörgu öðru. Hann hefur t.d. kennt stjörnufræði við góðan orðstír í Vísindasmiðjunni, Háskóla unga fólksins og í Háskólalestinni undanfarin ár sem öll eru verðlaunaverkefni ætluð ungu fólki á vegum Háskóla Íslands. Þá hefur Sævar stýrt frábærri sjónvarpsþáttaröð um umhverfismál, Hvað höfum við gert?, sem vakti gríðarlega athygli fyrr á árinu.
Fuglaskoðun þegar vorar
Þótt nú sé haust og veturinn smám saman að herða tökin þá er ekki í sjálfu sér langt þangað til fyrstu farfuglarnir snúa aftur heim. Þegar þeir flykkjast aftur hingað er sumarið á næsta leiti. Þess vegna er rakið að fara í fuglaskoðun í apríl og fjaran er auðvitað besti staðurinn til að skoða fugla snemma vors. Þeir Gunnar Þór Hallgrímsson, prófessor í dýrafræði við Háskóla Íslands, og Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi, hafa leitt þessar árvissu fuglaferðir með miklum tilþrifum enda vita þeir eiginlega allt um fugla.
„Minn uppáhaldsfugl er spói,“ segir Tómas Grétar aðspurður um þann fugl sem heillar hann mest. „Fuglar eru frísklegir og áberandi. Dýr sem ekki geta flogið og flúið á vængjum láta síður sjá sig og almenningur kynnist þeim því síður. Líklega værum við líka spennt fyrir fljúgandi krókódílum. Það er eitthvað heillandi við flugið sjálft. Ætli tilhneiging fólks til að velja sér uppáhaldsfugl sé eins og að halda með liði í ensku,“ segir Tómas Grétar og hlær.
Gunnar Þór segir að fuglar séu einu villtu hryggdýrin hérlendis sem séu oft fyrir augum okkar. „Ástæðan fyrir uppáhaldsfuglinum er sú að við tengjumst oft fuglum í gegnum okkar eigið líf vegna hæfileika þeirra í söng og atferli eða vegna þess hversu glæsilegir þeir eru. Hvort tveggja vekur upp sterkar tilfinningar.“
Pöddur hafa heillað unga fólkið svo um munar undanfarin ár og pödduskoðun í Elliðaárdal er því árviss viðburður á hverju sumri. Skordýr eru fjölbreyttasti flokkur dýra á jörðinni og á Íslandi hefur skordýrum fjölgað undanfarin ár af ýmsum ástæðum, ekki síst vegna hlýnunar. Nýjar tegundir hafa líka bæst við.

Fjaran er heillandi heimur
Það er auðvitað hægt að fara í fjöru allt árið um kring, en vorið er frábær tími til rannsókna í flæðarmálinu. Fjöruferð í Gróttu er þess vegna áformuð í lok apríl. Grótta er algjör perla en þar verða ýmsar lífverur skoðaðar, grúskað og leitað að kröbbum í fjörunni og öðrum smádýrum í skemmtilegri rannsóknaferð. Hildur Magnúsdóttir, doktorsnemi í líffræði við Háskóla Íslands, hefur leitt þessa göngu undanfarin ár og gríðarlegur fjöldi hefur notið þekkingar hennar.
„Við eigum von á að sjá gnótt af fjörusniglategundum eins og klettadoppu, þangdoppu og nákuðungi en einnig beitukóng sem yfirleitt lifir að mestu leyti neðan fjöru,“ segir Hildur. „Ekki má gleyma að líta milli steina og undir klapparþangið og klóþangið, þar sem leynast marflær, litlir krabbar og jafnvel sprettfiskar, en einnig fallegir gulir svampar,“ segir hún.
Pöddur, oj bara! Nei, alls ekki, þær eru magnaðar
Margir hafa ímugust á skordýrum og verða harla fegnir þegar haustar eins og núna að því marki að þá fækkar pöddunum í umhverfinu. En pöddur hafa heillað unga fólkið svo um munar undanfarin ár og pödduskoðun í Elliðaárdal er því árviss viðburður á hverju sumri. Skordýr eru fjölbreyttasti flokkur dýra á jörðinni og á Íslandi hefur skordýrum fjölgað undanfarin ár af ýmsum ástæðum, ekki síst vegna hlýnunar. Nýjar tegundir hafa líka bæst við.
Gísli Már Gíslason, skordýrasérfræðingur frá Háskóla Íslands, hefur verið fremstur í flokki við að fræða göngufólk um heim skordýranna en hann hefur líka verið áberandi í fjölmiðlum undanfarið. Þar hefur hann m.a. talað um nýja tegund hér sem enginn fagnar en það er lúsmýið sem bítur fólk. Gísli Már segir lúsmýið því miður komið til að vera. Hann segir að skordýr séu stærsti keppinautur mannsins um fæðu og hartnær fjórðungur af nytjaplöntum fari beint í skordýr, m.a. hveiti, bygg, maís og ýmsar aðrar plöntur sem menn nýti sér sem fæðu. „Miklum fjármunum er varið í heiminum á ári hverju í að halda skordýrum niðri.“
Gísli Már segir að skordýr séu engu að síður gríðarlega mikilvæg í lífríkinu. „Skordýr frjóvga allar blómplöntur, og ef þeirra nyti ekki við, þá væru blómplöntur ekki til.“
Algjör sveppur!
Gísli Már verður líka á ferðinni með fjölda sveppasérfræðinga næsta haust þegar sveppum er safnað í Heiðmörk. Sveppir eru algjört sælgæti en það er betra að þekkja þá góðu frá þeim vondu og eitruðu! Gísli Már og félagar kenna göngufólki að þekkja matsveppi og aðferðir við að geyma þá og matreiða.
Sveppagangan hefur unnið sér fastan sess í tilverunni og þarna hafa fjölskyldur notið haustfegurðar Heiðmerkur og fróðleiks á sama tíma.
„Rösklega tvö þúsund tegundir sveppa er skráðar á Íslandi og á hverju ári bætast við nýjar tegundir í þennan sérstaka flokk lífvera,“ segir Gísli Már og bætir því við að sumar sveppategundir hafi m.a. flust hingað með trjátegundum því margar þeirra eigi sveppi sem sambýlisveru, t.d. lerki og fura.
Meiri fróðleikur – meira fjör
Til viðbótar þessu verður Eldfjallaganga á Helgafell næsta haust með jarðfræðingum frá Háskólanum og Stríðsminjaganga um Öskjuhlíð þar sem eru leynileg neðanjarðarhús, skotbirgi, glópagull, kanínur, tankar og trjákofar. Þetta er fátt eitt af því sem gerir Öskjuhlíðina að undraheimi sem ótrúlega gaman er að rannsaka. Í hlíðinni er líka vísir að skógi með miklu fuglalífi. Stefán Pálsson, sagnfræðingur og stundakennari við Háskóla Íslands, ætlar að leiða göngufólk um Öskjuhlíðina og veita innsýn í merka sögu svæðisins.
Ókeypis er í allar fróðleiksgöngurnar og öll velkomin. Mikilvægt er að mæta vel klædd og gjarnan með nesti, en alltaf með góða skapið.
Göngur á árinu 2019
Stjörnu- og norðurljósaskoðun – 17. janúar
Fuglaskoðun – 18. apríl
Fjöruferð í Gróttu – 25. apríl
Pödduskoðun í Elliðaárdal – 11. júní
Sveppasöfnun í Heiðmörk – 19. ágúst
Eldfjallaganga á Helgafell við Hafnarfjörð – 10. október
Stríðsminjaganga í Öskjuhlíð – 31. október
