Skip to main content
11. júní 2015

Friðrik Larsen, lektor, komin úr fyrirlestraferð

""

Á dögunum kom Friðrik Larsen, lektor við Viðskiptafræðideild, heim úr ráðstefnuferð um Pólland og Þýskaland þar sem hann flutti erindi um markaðssetningu rafmagns sem byggðu á doktorsritgerð hans. Friðrik lauk doktorsnámi sínu á síðasta ári og er doktorsritgerð hans titluð „Energy Branding. Sources of brand value in electricity“.

Þann 25. maí flutti hann fyrirlestur í University of Economics í Poznan um „re-branding“ eða endurmörkun. Því næst lá leið hans á ráðstefnu á vegum samtaka pólska raforkusambandsins þann 26. maí þar sem hann flutti fyrirlestur um markaðssetningu rafmagns og aukin áhrif viðskiptavina. Á ráðstefnunni voru fulltrúar allra helstu framleiðenda, dreifingaraðila og seljenda rafmagns í Póllandi. Við sama tilefni stýrði hann vinnustofu fyrir stjórnendur sem vakti nokkra athygli og tók pólska sjónvarpið viðtal við hann vegna þess. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má nálgast á vef hennar hér: http://www.energy21.pl/?lang=en.

Þann 27. maí fór fram verðlaunaafhending CEE Energy Awards & Forum á verðlaununum Solar Energy Company of the Year og var Friðrik beðinn um að flytja fyrirlestur um markaðssetningu rafmagns í tilefni af því, nánari upplýsingar hér:

http://ceeenergyawards.com.

1. til 2. júní var árleg ráðstefna Eurelectric haldin undir yfirskriftinni „The Consumer Powered Energy Transition“, og fjallaði um þær breytingar sem nú eru að verða á rafmagnsmörkuðum heims. Friðrik var þar einn aðalfyrirlesara ráðstefnunnar og kom fram á eftir Jochen Flasbarth, ráðherra umhverfismála í Þýskalandi, og á undan Arndt Neuhaus, forstjóra RWE Deutchland sem er eitt af fimm stærstu orkufyrirtækjum Evrópu. Nánari upplýsingar eru hér á vefsíðu Eurelectric:

http://www.eurelectric.org/berlin2015/
Friðrik Larsen
Umræður á Eurelectric
+1

Friðrik Larsen flutti erindi á ráðstefnunni Eurelectric sem haldin var undir yfirskriftinni „The Consumer Powered Energy Transition“.