Framhaldsskólanemar taka þátt í Háskólahermi HÍ

Von er á hátt í þrjú hundruð framhaldsskólanemum í Háskóla Íslands dagana 18. og 19. febrúar til þess að taka þátt í tilraunaverkefni sem kallast Háskólahermir. Verkefnið er nýtt af nálinni og er liður í að efla enn frekar samstarf Háskóla Íslands við framhaldsskóla landsins og gefa ungu fólki tækifæri til að kynnast starfsemi háskólans af eigin raun. Í Háskólaherminum taka nemendurnir virkan þátt í háskólasamfélaginu og kynnast námsframboði skólans með lifandi og stundum óvæntum hætti.
Sex framhaldsskólar taka þátt í Háskólaherminum að þessu sinni: Flensborgarskóli, Menntaskólinn í Kópavogi, Fjölbrautaskólinn í Mosfellsbæ, Tækniskólinn, Fjölbrautaskóli Suðurnesja og Fjölbrautaskóli Snæfellinga. Dagana tvo munu nemendur heimsækja öll fimm fræðasvið Háskóla Íslands, kynnast ólíkum hliðum námsins og spreyta sig á spennandi verkefnum sem tengjast tilteknum þemum innan sviðanna.
Með heimsókninni fá þau góða innsýn í fjölbreytt námsframboð Háskólans og hugmyndir um hvað námið felur í sér. Lögð er áhersla á að verkefnin á sviðunum séu fjölbreytt og gefi mynd af hagnýtingu námsins að því loknu.
Háskólahermirinn fer fram víða á háskólasvæðinu: á Háskólatorgi, í Stakkahlíð, Lögbergi, Öskju, Aðalbyggingu og Læknagarði. Viðburðinum lýkur með lokahátíð á Háskólatorgi föstudaginn 19. febrúar.
Háskólahermirinn er liður í að hjálpa ungu fólki að taka upplýsta og ígrundaða ákvörðun um náms- og starfsval að loknum framhaldsskóla. Stefnt er að því þetta verði árlegur viðburður í Háskóla Íslands í góðu samstarfi við framhaldsskóla landsins.
Upplýsingar um Háskólaherminn má finna á heimasíðu verkefsinsins og á Facebook-síðu þess

