Skip to main content
2. mars 2016

Fræðafólk frá Slóvakíu heimsækir Stjórnmálafræðideild

""

Þessa vikuna eru staddir hér á landi fjórir fræðimenn, þau Denisa Čiderová, Klaudia Pyteľová, Martin Grešš og Tomáš Dudáš, frá University of Economics in Bratislava í Slóvakíu. Þau eru hér fyrir tilstilli kennaraskiptasamnings sem Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri gerðu við háskólann í Bratislava á síðasta ári.

Meðan á heimsókninni stendur munu Denisa, Klaudia, Martin og Tomáš halda fyrirlestra í þremur námskeiðum við Stjórnmálafræðideild. Klaudia fjallar um slóvakísk stjórnmál í námskeiðinu Samanburðarstjórnmál hjá Stefaníu Óskarsdóttur og Tomáš ræðir leiðina til lýðræðis í smáríkinu Slóvakíu hjá Birgi Hermannssyni í námskeiðinu Staða og merking lýðræðis, fullveldis og þjóðríkisins á nýrri öld. Loks munu Martin og Denisa heimsækja námskeið Max Conrad, Áskoranir Evrópusamrunans, og fjalla um leiðir Slóvakíu til áhrifa innan Evrópusambandsins. 

Markmið kennaraskiptasamningsins er að miðla þekkingu og reynslu milli Slóvakíu og Íslands á sviði smáríkjafræða með áherslu á alþjóðahagkerfið, alþjóðastjórnmál og alþjóðalög. Í því skyni hafa sérfræðingar á þessum sviðum ferðast á milli landanna tveggja og haldið fyrirlestra um sín rannsóknarefni. Þannig nýtist samningurinn bæði kennurum og nemendum; kennarar njóta góðs af auknum samskiptum við sérfræðinga á ólíkum sviðum smáríkjafræðanna og nemendur kynnast kennslu ólíkra sérfræðinga og læra um mismunandi nálganir og sjónarmið innan fræðasviðsins.

Samningurinn nýtur stuðnings styrktarsjóðs EES og Slóvakíu undir samstarfsáætluninni EEA Scholarship Programme Slovakia. 

Denisa Čiderová, Birgir Hermannsson, Tomáš Dudáš, Martin Grešš, Max Conrad, Baldur Þórhallsson, Klaudia Pyteľová og Stefanía Óskarsdóttir
Denisa Čiderová, Birgir Hermannsson, Tomáš Dudáš, Martin Grešš, Max Conrad, Baldur Þórhallsson, Klaudia Pyteľová og Stefanía Óskarsdóttir