Skip to main content
18. febrúar 2016

Forsætisráðherra gestur meistaranema

""

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra heimsótti meistaranema í námskeiðinu Samvinna og árangur miðvikudaginn 17. febrúar síðastliðinn en nemendurnir standa þessa dagana fyrir söfnunarátakinu Upplifun fyrir alla sem miðar að því að afla fjár fyrir sumarbúðirnar í Reykjadal. Gerði ráðherra samvinnu að umtalsefni sínu og tengsl hennar við árangur.

Nefndi hann að samvinnu mætti skipta í tvennt, annars vegar samvinnu þar sem samheldinn hópur vinnur saman og togar í sömu átt. Hins vegar samvinna þar sem rökræða milli ólíkra hópa leiðir af sér betri niðurstöðu. Niðurstaðan verði alltaf betri í gegnum samvinnu.

Tengdi Sigmundur þetta við stjórnmálin og talaði um að innan flokka þyrftu að vera sátt og sameiginleg sýn sem flokkurinn stæði að baki. Það væri svo samtal milli flokkanna og ólíkra sjónarmiða sem leiddi til betri niðurstöðu. Nefndi hann að helsta birtingamynd þess væru rökræður úr ræðupúlti Alþingis og þótt þær virkuðu ekki sem samvinna þá leiddu þær hins vegar til bættrar niðurstöðu.

Að loknu erindi sínu tók hann við spurningum frá nemendum og lauk hann heimsókn sinni á að taka myndband af hópnum og birta á Snapchat-aðgangi sínum.

Forsætisráðherra ásamt meistaranemum
""
""
Forsætisráðherra ásamt meistaranemum
""
""