22. febrúar 2016
Fjörutíu brautskrást frá Stjórnmálafræðideild

Brautskráning frá Háskóla Íslands fór fram nú um nýliðna helgi. Alls brautskráðust fjörutíu kandídatar frá Stjórnmálafræðideild; fimm kandídatar luku meistaranámi, 26 diplómanámi og níu BA-námi í stjórnmálafræði.
Af þeim sem brautskráðust úr meistaranámi voru fjórir kandídatar með MPA í opinberri stjórnsýslu og einn með MA í kynjafræði. Meirihluti kandídata með diplómagráðu komu úr námi í opinberri stjórnsýslu, eða 23, einn lauk viðbótardiplómu í Evrópufræði og tveir í smáríkjafræði.
Stjórnmálafræðideild sendir brautskráningarkandídötum innilegar hamingjuóskir með áfangann.
Yfirlit yfir lokaritgerðir meistara- og BA-nema er að finna á heimasíðu Stjórnmálafræðideildar.
