Skip to main content
22. mars 2016

Fimm öndvegisstyrkir til vísindamanna Háskóla Íslands

""

Vísindamenn við Háskóla Íslands eru verkefnisstjórar í fimm af þeim sex rannsóknaverkefnum sem hljóta öndvegisstyrki úr Rannsóknasjóði Rannís árið 2016. Tilkynnt var um úthlutun styrkja úr sjóðnum í gær. Vísindamenn og doktorsnemar við skólann og tengdar stofnanir eru enn fremur verkefnisstjórar í alls þremur af hverjum fjórum styrktum verkefnum að þessu sinni.

Alls barst 291 gild umsókn í Rannsóknasjóð að þessu sinni og voru 72 þeirra styrktar eða 25% umsókna. 

Tuttugu og tvær umsóknir bárust um öndvegisstyrki og voru sex umsóknir styrktar að þessu sinni sem fyrr segir. Fimm þeirra tengjast Háskóla Íslands. Verkefnið „Leiðni í skertum víddum fyrir sterk tengsl ljóss og efnis“ hlýtur slíkan styrk en verkefnisstjóri þess er Ivan Shelykh, prófessor við Raunvísindadeild. Þá hlýtur „Borverkefnið IceSUSTAIN í Surtsey: Myndun og þróun eldfjallaeyjar og landnám lífríkis í heitu bergi“ undir stjórn Magnúsar Tuma Guðmundssonar, prófessors við Jarðvísindadeild, einnig öndvegisstyrk og sama má segja um verkefnið „Erfðir heilsufars í kjölfar áfalla“ undir stjórn Unnar Önnu Valdimarsdóttur, prófessors í lýðheilsuvísindum við Læknadeild. Enn fremur hljóta rannsóknirnar „Hreyfanleiki og þverþjóðleiki á Íslandi“ sem Kristín Loftsdóttir, Unnur Dís Skaptadóttir og Sigurjón B. Hafsteinsson, prófessorar við Félags- og mannvísindadeild, standa að og „Greining á málfræðilegum afleiðingum stafræns málsambýlis“, sem Sigríður Sigurjónsdóttir og Eiríkur Rögnvaldsson, prófessorar við Íslensku- og menningardeild, stýra öndvegisstyrk að þessu sinni. 

Rannsóknasjóði Rannís bárust enn fremur 190 umsóknir um verkefnisstyrki sem tengjast mismunandi fræðigreinum og voru 44 þeirra styrktar. Tuttugu og átta styrktra umsókna, eða nær tvær af hverjum þremur, komu frá verkefnisstjórum við Háskóla Íslands og tengdar stofnanir.

Enn fremur var sótt um 35 svokallaða rannsóknastöðustyrki og voru tíu umsóknir samþykktar. Níu þeirra renna til verkefnisstjóra sem starfa við Háskóla Íslands eða tengdar stofnanir. Þá voru einnig veittir styrkir til doktorsnema úr Rannsóknasjóði og bárust sjóðnum alls 44 umsóknir um slíka styrki. Tólf þeirra fengu styrki að þessu sinni og eru doktorsnemarnir sem þá hljóta allir við Háskóla Íslands eða tengdar stofnanir.

Alls hlutu því 54 verkefni, sem lúta verkefnisstjórn vísindamanna eða doktorsnema við Háskóla Íslands eða tengdar stofnanir, styrk frá Rannís að þessu sinni. Það þýðir að 75% þeirra verkefna sem styrkt voru tengjast Háskóla Íslands en þess skal getið að hópar vísindamanna innan og utan Háskólans koma að flestum umsóknanna sem Rannsóknasjóður Rannís styrkti að þessu sinni.

Aðalbygging Háskóla Íslands
Aðalbygging Háskóla Íslands