Skip to main content
21. janúar 2016

Evrópski persónuverndardagurinn 2016

Fimmtudaginn 28. janúar verður málþing á vegum Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands og Persónuverndar. Málþingið ber heitið: Evrópski persónuverndardagurinn 2016 - Persónuupplýsingar hjá fyrirtækjum og stjórnsýslu og fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands milli kl. 12 og 13.

Umfangsmikil söfnun og skráning persónuupplýsinga fer fram hjá stofnunum hins opinbera, fyrirtækjum á almennum markaði, verslunum, þjónustuaðilum og fleirum. Slík skráning getur verið nauðsynleg fyrir einstaklinga en hún getur einnig farið fram án vitundar þeirra og vilja. Með aukinni skráningu persónuupplýsinga eykst hættan á því að misfarið sé með þessar upplýsingar. Eru lög og reglur hér nægilega skýrar? Hvað má og hvað ber að varast? Hvaða þýðingu hafa nýlegar dómsúrlausnir Mannréttindadómstóls Evrópu og dómstóls ESB á sviði persónuverndar?

Dagskrá:
Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytis, opnar málþingið.

Alma Tryggvadóttir, skrifstofustjóri upplýsingaöryggis hjá Persónuvernd: Grundvallarreglur um meðferð persónuupplýsinga hjá fyrirtækjum og stofnunum. Einnig verður kynnt ný Evrópulöggjöf um Persónuvernd. Aukin vernd einstaklingsins og réttur til að ráðstafa eigin persónuupplýsingum.

Í pallborði sitja: Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, Björg Thorarensen, stjórnarformaður Persónuverndar, Helgi Hrafn Gunnarsson alþingismaður, Katrín Jakobsdóttir alþingismaður og Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis.

Málstofustjóri: Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar.

Málþingið er opið öllum og aðgangur ókeypis.

Málþingið ber heitið: Evrópski persónuverndardagurinn 2016 - Persónuupplýsingar hjá fyrirtækjum og stjórnsýslu   -
Málþingið ber heitið: Evrópski persónuverndardagurinn 2016 - Persónuupplýsingar hjá fyrirtækjum og stjórnsýslu   -