Skip to main content
8. febrúar 2015

Erindi MARK:Félagsráðgjöf, hælisleitendur og flóttafólk

Guðbjörg Ottósdóttir fjallar um starf félagsráðgjafa í vinnu með hælisleitendum og flóttamönnum í erindinu „Félagsráðgjöf, hælisleitendur og flóttafólk: Áskoranir“ miðvikudaginn 11. febrúar kl. 12-13 í stofu 131 í Öskju.

Byggt er að hluta til á niðurstöðum doktorsrannsóknar höfundar þar sem tekin voru eigindleg viðtöl við 28 hælisleitendur og flóttamenn með töluverðar þarfir og 17 starfsmenn í velferðarþjónustu í Bretlandi. Félagsráðgjafar í opinbera geiranum upplifa töluverðar áskoranir í að mæta þörfum berskjaldaðra hópa, hælisleitenda og flóttamanna. Lagaumhverfið og skert réttindi heftir þá í að koma á móts við þarfir einstaklinga og veldur togstreitu í starfi þeirra á milli mannréttindasjónarmiða og hlutverks. Fjallað er um það lagaumhverfi sem mótar starf félagsráðgjafa og réttindi hælisleitenda og flóttamanna og hvernig það kristallast í starfi.

Guðbjörg Ottósdóttir er starfandi aðjunkt við Félagsráðgjafadeild í Háskóla Íslands og stundar jafnframt doktorsnám í Bretlandi. Hún er félagsráðgjafi að mennt og auk þess með BA-próf í mannfræði og MA-próf í félagsfræði. Guðbjörg á að baki langt starf með flóttamönnum hér á landi, þ.m.t hjá Reykjavíkurborg og Akranesi, og starfaði  lengi hjá þjónustumiðstöð í Reykjavík þar sem hún sinnti málefnum innflytjenda.

Allir hjartanlega velkomnir 

 

Guðbjörg Ottósdóttir er aðjúnkt við Félagsráðgjafardeild
Guðbjörg Ottósdóttir er aðjúnkt við Félagsráðgjafardeild