Skip to main content
17. febrúar 2015

Erindi á vegum Rannsóknastofu um þróun skólastarfs

Erindi á vegum Rannsóknastofu um þróun skólastarfs - á vefsíðu Háskóla Íslands

Sigrún Harðardóttir, lektor við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, mun flytja erindi á vegum Rannsóknastofu um þróun skólastarfs á morgun, 18. febrúar.

Erindið byggist á doktorsrannsókn höfundar og ber yfirskriftina „Tengsl námslegrar stöðu við lok grunnskóla og námsframvindu í framhaldsskóla“.

Sigrún flytur erindið í stofu K-206 á Menntavísindasviði Háskóla Íslands í Stakkahlíð kl. 16:20-17:05. Allir velkomnir.

Lesa má nánar um viðburðinn á heimasíðu Rannsóknastofu um þróun skólastarfs.

 

Sigrún Harðardóttir við doktorsvörn sína vorið 2014
Sigrún Harðardóttir við doktorsvörn sína vorið 2014