Dr. Ravi Batra flytur erindi í Háskóla Íslands

Dr. Ravi Batra, prófessor í hagfræði, heldur opinn fyrirlestur í Hátíðasal Háskóla Íslands mánudaginn 15. júní kl. 12.00-13.00. Batra mun í fyrirlestrinum greina frá rannsóknum sínum á sviði samspils óhóflegs ójafnaðar og efnahagskollsteypa. Einnig mun hann fjalla um leiðir til að fyrirbyggja slíkt, með t.d. aukinni samkeppni á markaði og með því bæta kjör vinnandi fólks og draga úr hagsveiflum.
Dr. Ravi Batra er prófessor í hagfræði við Southern Methodist University í Dallas. Hann er höfundur fimm alþjóðlegra metsölubóka og fjölda ritrýndra greina í þekktustu hagfræðiritum heims. Dr. Batra var í grein í Economic Enquiry í október 1978 talinn til hóps „ofurstjarna í hagfræði“ í Bandaríkjunum og Kanada. Forsætisráðherra Ítalíu veitti honum Orðu Öldungadeildar Ítalíu árið 1990 fyrir að spá réttilega fyrir um fall Sovétríkjanna fimmtán árum áður. Árið 2009 hlaut Batra viðurkenningu Pratima and Navin Doshi fyrir framlag sitt til hagfræðigreiningar.
Eftir erindin gefst kostur á umræðum og fyrirspurnum. Daði Már Kristófersson, forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands, verður fundarstjóri.
Fundurinn fer fram á ensku. Að honum standa forsætisráðuneytið, Háskóli Íslands og Seðlabanki Íslands í sameiningu.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
