Axel Hall varði doktorsritgerð sína í Hagfræði

Þriðjudaginn 2. júní varð Axel Hall fimmhundruðasti doktorinn frá Háskóla Íslands, en hann varði þá doktorsritgerð sína Skattar og atvinna á Norðurlöndunum. Axel er jafnframt fjórði doktorinn í hagfræði frá Hagfræðideild á Félagsvísindasviði.
Andmælendur voru þeir Dr. Torben Andersen, prófessor í hagfræði við Háskólann í Árósum, og Dr. Per Lundborg, prófessor í hagfræði við Háskólann í Stokkhólmi.
Leiðbeinandi var dr. Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, ásamt honum sátu í doktorsnefnd dr. Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands og dr. Vidar Christansen, prófessor í hagfræði við Háskólann í Osló.
Doktorsverkefnið
Skattar eru á hverjum tíma eitt af umdeildustu og viðkvæmustu viðfangsefnum á vettvangi stjórnmála. Fjármögnun hins opinbera og endurdreifing tekna er stjórnmálalegt viðfangsefni sem byggir á gildismati og skoðunum sem skorið er úr um í kosningum í lýðræðisríkjum. Norðurlöndin skipa sér í hóp þjóða ólíkum flestum öðrum þegar litið er til umfangs endurdreifingar tekna og skattlagningu.
Í þessari rannsókn er því haldið fram að Norðurlöndum hafi tekist að ná lægri fórnarskiptum á milli skilvirkni og jafnaðar með kerfi gildismats, skatta og útgjalda hins opinbera sem stuðlar að meiri vinnuaflsþátttöku en ella. Markmið þessarar ritgerðar er að bera saman skattkerfi Norðurlanda á vinnumarkaði og í kjölfarið að rannsaka áhrif ólíkra skattkerfa á atvinnu og vinnuframboð. Það hvernig aðferðir við skattlagningu vinnuafls hafa áhrif á vinnumarkað er eitt af því sem hefur reynst hvati þessarar rannsóknar.
Smellið hér til að fá nánari upplýsingar um efni ritgerðarinnar.
Starfsfólk Hagfræðideildar og Félagsvísindasviðs óskar Axel innilega til hamingju með þennan áfanga.







