Skip to main content
5. febrúar 2015

Alþjóðleg útgáfa norrænnar rannsóknar um refsilögsögu

Ragnheiður Bragadóttir, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands, er höfundur kafla um íslenska refsilögsögu í nýrri bók sem bókaforlagið DJØF Publishing í Kaupmannahöfn hefur gefið út.

Ritið ber heitið Criminal Jurisdiction – A Nordic Perspective og er afrakstur rannsóknaverkefnis fræðimanna á Norðurlöndum og í Þýskalandi um réttarreglur um refsilögsögu á Norðurlöndum og hefur alþjóðlega dreifingu. Ritstjórar eru Thomas Elholm & Birgit Feldtmann. Í bókinni eru fimm kaflar sem hver um sig fjallar um refsilögsögu á Norðurlöndunum fimm. Sjötti og síðasti kaflinn fjallar um norræna refsilögsögu í alþjóðlegu samhengi. Rannsóknaniðurstöður verða jafnframt gefnar út á þýsku vorið 2015.

Í kynningu á bókinni segir m.a.: „Jurisdiction in criminal matters is one of the classical central issues concerning criminal justice. Due to globalization it seems increasingly relevant for legislators, prosecutors and judges all over.“

Reglurnar um refsilögsögu fjalla um mörkin gagnvart erlendum refsilögum og refsidómstólum og er litið svo á að þær tilheyri landsrétti hvers ríkis. Þessar reglur þurfa að vera í góðu samræmi við lögsögureglur annarra ríkja, svo að samskipti á þessu sviði við aðrar þjóðir gangi greiðlega. Vegna aukinnar hnattvæðingar hafa þessar reglur fengið aukið vægi. Lítið hefur verið fjallað um þær í norrænu samhengi og því var ráðist í þetta rannsóknarverkefni.

Nánari upplýsingar um bókina.

Ragnheiður Bragadóttir