Skip to main content
23. mars 2016

Áframhald á samstarfi Lagadeildar og Hafréttarstofnunar

""

Tómas H. Heiðar, forstöðumaður hjá Hafréttarstofnun Íslands og dómari við Alþjóðlega hafréttardóminn í Hamborg, og Eyvindur G. Gunnarsson, forseti Lagadeildar, undirrituðu á dögunum áframhaldandi samning um kennslu og rannsóknir í auðlindafræði.

Markmið samningsins er að efla kennslu og rannsóknir á sviði auðlindaréttar við Lagadeild Háskóla Íslands með áherslu á auðlindir hafsins. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2016 til 31. desember 2018 en Hafréttarstofnun stendur straum af hluta kostnaðar af stöðu dósents í auðlindarétti við Lagadeild.

Eyvindur G. Gunnarsson, forseti Lagadeildar HÍ og Tómas H. Heiðar, forstöðumaður hjá Hafréttarstofnun Íslands og dómari við Alþjóðlega hafréttardóminn í Hamborg
Eyvindur G. Gunnarsson, forseti Lagadeildar HÍ og Tómas H. Heiðar, forstöðumaður hjá Hafréttarstofnun Íslands og dómari við Alþjóðlega hafréttardóminn í Hamborg