Skip to main content
23. janúar 2015

Af nýjum birtingum við Félagsráðgjafardeild

Sigrún Harðardóttir, lektor við Félagsráðgjafardeild, Sigrún Júlíusdóttir, prófessor við Félagsráðgjafardeild, og Halldór S. Guðmundsson, lektor við Félagsráðgjafardeild, birtu nýverið grein í fræðiritinu Child and Adolescent Social Work Journal.

Greinin ber heitið „Understanding Resilience in Learning Difficulties: Unheard Voices of Secondary School Students“ og er viðfangsefnið hluti af niðurstöðum doktorsrannsóknar Sigrúnar Harðardóttur, „Líðan framhaldsskólanemenda. Um námserfiðleika, áhrifaþætti og ábyrgð samfélags“. Greinina má nálgast í rafrænum aðgangi hér.
 

Sigrún Harðardóttir við doktorsvörn sína vorið 2014
Sigrún Harðardóttir við doktorsvörn sína vorið 2014