Á fimmta hundrað kandídata brautskráist frá HÍ á morgun

Rúmlega 450 kandídatar taka við brautskráningarskírteini sínu í grunn- eða framhaldsnámi frá Háskóla Íslands á morgun, laugardaginn 18. febrúar, þegar febrúarbrautskráning skólans fer fram í Háskólabíói kl. 13.
Athöfnin hefst með ávarpi Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands, en í framhaldinu fer fram brautskráning nemenda úr 25 deildum af öllum fimm fræðasviðunum skólans, Félagsvísindasviði, Heilbrigðisvísindasviði, Hugvísindasviði, Menntavísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Samanlagður fjöldi brautskráðra er 455, 329 konur og 126 karlar.
179 kandídatar brautskrást frá Félagsvísindasviði, 78 frá Heilbrigðisvísindasviði, 77 frá Hugvísindasviði, 51 frá Menntavísindasviði og 70 frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Í hópi brautskráðra er fyrsti nemandinn sem útskrifast með MS-gráðu í lífupplýsingafræði á Verkfæði- og náttúruvísindasviði.
Að lokinni brautskráningu kandídata mun Inga María Árnadóttir, varaformaður Stúdentaráðs, flytja ávarp og Háskólakórinn syngur nokkur lög.
Kandídötum er ætlað afmarkað svæði í Háskólabíói og eru þeir beðnir um að mæta ekki síðar en kl. 12.00. Hver kandídat verður með númerað sæti sem kemur fram á nafnalista sem afhentur verður með dagskrá við innganginn og er sætaskipan í samræmi við afhendingu prófskírteina. Umsjónarfólk verður á staðnum til að leiðbeina um sætaskipan.