Gísli Steinn Pétursson, MS-nemi við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild
„Verkefnið er unnið fyrir Landsvirkjun en í því vinna saman Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Siglingastofnun að því að sannreyna straumfræðilega hönnun flóðamannvirkis við fyrirhugaða Urriðafossvirkjun í Neðri-Þjórsá. Með niðurstöðunum verður unnt að leggja til breytingar á hönnuninni. Flóðamannvirkið er svokölluð veltuþró sem hefur ekki áður verið byggð á Íslandi,“ segir meistaraneminn Gísli Steinn Pétursson. „Veltuþró er straummannvirki, sem tekur við rennsli sem fer um yfirfall. Veltuþróin hefur bogadreginn botn sem eyðir umframorku í flóðum með því að framkalla veltu í rennslinu. Þróin stýrir þannig rennslinu, dregur úr orkunni í því og kemur með því í veg fyrir að orkan sé það mikil að hún geti grafið undan stíflunni við lónið.“
Gísli Steinn Pétursson
Rannsóknin sem Gísli Steinn tekur þátt í fer fram í Kópavogi þar sem Siglingastofnun hefur rannsóknaaðstöðu en þar hefur líkan af Urriðafossvirkjun verið byggt í skalanum 1 á móti 40. Líkanið er um 200 fermetrar að stærð og er byggt af mikilli nákvæmni.

Rannsóknin sem Gísli Steinn tekur þátt í fer fram í Kópavogi þar sem Siglingastofnun hefur rannsóknaaðstöðu en þar hefur líkan af Urriðafossvirkjun verið byggt í skalanum 1 á móti 40. Líkanið er um 200 fermetrar að stærð og er byggt af mikilli nákvæmni. „Eftir að ég hafði unnið við gerð líkans að Hvammsvirkjun ræddi ég við leiðbeinendur mína um hugsanlegt verkefni í tengslum við Urriðafossvirkjun. Þegar fyrir lá að veltuþró yrði notuð sem flóðamannvirki skapaðist augljóst tækifæri til frekari rannsókna þar sem aðstæður við fyrirhugaða Urriðafossvirkjun verða svolítið öðruvísi en vanalega í tengslum við slík mannvirki.“
Gísli Steinn segir afar ánægjulegt að fá tækifæri til að vinna að svona verkefni hér heima og fullyrðir að slíkt gerist ekki oft. „Ég var mjög spenntur þegar mér bauðst að starfa við þetta verkefni hjá Landsvirkjun. Þar sem ég hef mikinn áhuga á straumfræði vildi ég strax flétta meistaraverkefnið mitt inn í þetta stóra verkefni.“
Gísli Steinn segir að afurðirnar úr verkefninu verði tillögur að bestu hönnun mannvirkjanna enda sé rannsóknin unnin í nánu samstarfi við hönnuði áformaðra virkjana í Neðri-Þjórsá, verkfræðistofurnar Mannvit og Verkís. „Sams konar verkefni vegna virkjana hérlendis hafa hingað til verið unnin við háskóla erlendis, m.a. í Noregi, Svíþjóð og Sviss,“ segir Gísli Steinn og bætir við: „Kostir þess að vinna svona verkefni hér heima eru þeir helstir að hönnuðir hafa betri aðgang að líkönum og niðurstöðum á meðan rannsókninni vindur fram auk þess sem þekking og hugvit myndast hér og verða áfram í landinu.“
Leiðbeinendur: Sigurður Magnús Garðarsson, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild, Gunnar Guðni Tómasson, forstjóri HRV Engineering, og Andri Gunnarsson, verkefnisstjóri hjá Landsvirkjun.