Skip to main content

Viðhorf til enskunáms

Anna Jeeves, Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda

Enska er ekki opinbert annað tungumál á Íslandi, þó má segja að hún sé lingua franca, eða samskiptamál meðal þeirra sem eiga hana og eiga hana ekki að móðurmáli. Íslendingar nota ensku við ýmsar aðstæður, sem samskiptamál erlendis og heima fyrir, við upplýsingaleit, í námi og vinnu, og til afþreyingar í formi kvikmynda, sjónvarpsþátta, tölvuleikja og lesefnis. Enskan er einnig kennd sem námsgrein árum saman í íslenskum grunn- og framhaldsskólum.

Anna Jeeves

Í doktorsritgerð sinni kannar Anna Jeeves viðhorf framhaldsskólanemenda og ungs fólks til gildis í enskunámi sínu við framhaldsskóla.

Anna Jeeves

Viðhorf málnema á efri skólastigum til gildis ensku hafa lítið verið rannsökuð enda er gildi náms (e. relevance) nýtt rannsóknarefni og lítið vitað um eðli gildis og hlutverk þess í tileinkun tungumála. Hvert er gildi og tenging enskunáms við áhugamál og framtíðaráætlanir nemenda? Hversu góðan undirbúning telja nemendur enskunám sitt vera fyrir framtíðarvinnu og háskólanám? Hver er svo reynsla þeirra að stúdentsprófi loknu? Hver reynist enskufærni íslenskra stúdenta þegar þeir halda áfram út á vinnumarkað eða í háskólanám?

Þessum spurningum verður leitast við að svara í doktorsritgerð Önnu Jeeves um viðhorf framhaldsskólanemenda og ungs fólks til gildis í enskunámi sínu við framhaldsskóla. „Rannsókn mín byggist á viðtölum og greiningu þeirra. Ég tek viðtöl við nemendur á framhalds- og háskólastigi og einnig við ungt fólk á vinnumarkaði“, segir Anna. „Ég spyr um viðhorf til enskunámsins, um hvernig námið muni nýtast á næsta skólastigi og í atvinnulífinu, og um notkun ensku dags daglega. Það er afar mikilvægt að raddir málnotenda sjálfra heyrist þegar enskunám og notkun er kortlögð.“

Eitt sem kemur sterkt fram í langflestum viðtölum er það að næstum dagleg enskunotkun ungra Íslendinga virðist hafa lítil áhrif á viðhorfi þeirra til íslenskrar tungu. „Íslenskan er mjög sterkt afl í lífi ungra Íslendinga, en enskan opnar dyr að öllum heiminum,“ segir Anna.

Leiðbeinandi: Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor við Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda.

Tengt efni