Díana Óskarsdóttir, lektor við Læknadeild
„Markmið rannsóknarinnar er að kanna áhrif verulegs þyngdartaps og truflaðrar næringarupptöku hjá offitusjúklingum á beinabúskap eftir hjáveituaðgerð á maga og görnum,“ segir Díana Óskarsdóttir, lektor í geislafræði, um rannsókn sem hún vinnur að.
Að sögn Díönu er hjáveituaðgerð á maga og görnum meðferðarleið sem boðið er upp á fyrir þá sem þjást af alvarlegri offitu. Slíkar aðgerðir hafa verið framkvæmdar hér á landi til fjölda ára en þær felast í að minnka maga og stytta garnir. Aðgerðirnar eru verulega áhrifaríkar en „fólk missir 20 til 40 prósent af þyngd sinni eftir þær,“ segir Díana og bætir því við að aðgerðirnar dragi meðal annars úr dánartíðni vegna offitu. Hún segir jafnframt að aðgerðirnar hafi í för með sér breytingar á næringarupptöku og efnaskiptum til lengri eða styttri tíma. Því sé mikilvægt að kortleggja sem flesta fylgikvilla sem af aðgerðinni geta stafað og fyrirbyggja þannig hugsanlegan skaða. „Skömmu eftir aðgerðina hefst 24 mánaða eftirfylgni til að meta langtímaáhrif hjáveituaðgerðarinnar á beinabúskapinn.“
Díana Óskarsdóttir
Að sögn Díönu er hjáveituaðgerð á maga og görnum meðferðarleið sem boðið er upp á fyrir þá sem þjást af alvarlegri offitu. Slíkar aðgerðir hafa verið framkvæmdar hér á landi til fjölda ára en þær felast í að minnka maga og stytta garnir.

Geislafræðin, sem Díana vinnur við, er afar mikilvægt svið innan læknavísindanna en geislafræðingar nota margvíslegan myndgerðarbúnað sem gerir þeim kleift að greina og meðhöndla sjúkdóma og áverka með góðum árangri. „Það var einmitt nýtt greiningartæki til rannsókna, beinþéttnimælir, sem kom hingað til lands fyrir fáeinum árum, sem varð kveikjan að þessari rannsókn. Hann gefur okkur kost á að mæla beinþéttni og líkamssamsetningu offitusjúklinga og gerir í raun þessa rannsókn mögulega.“
Díana segir vísbendingar um að beinþéttni minnki eftir mikið þyngdartap og sýni fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar verulegt beintap hjá sjúklingum á 12 mánaða tímabili eftir hjáveituaðgerð á maga og görnum. Beintap getur valdið beinþynningu og með henni eykst hætta á beinbrotum. Að sögn Díönu eru vonir bundnar við að geta fundið hugsanlegar orsakir beintapsins í rannsókninni. „Næsta skrefið er að bera beintap saman við innbyrðis tap á vöðvum og fitu ásamt því að skoða aðra þætti eins og líkamsáreynslu.“ Díana segir að upplýsingar um orsakir beintaps séu mikilvægar fyrir meðferðaraðila og skjólstæðinga svo að hægt sé að beita viðeigandi meðferð gegn hugsanlegu beintapi.
Gunnar Sigurðsson, innkirtlasérfræðingur og fyrrverandi yfirlæknir á Landspítala – háskólasjúkrahúsi og prófessor við Læknadeild, er ábyrgðarmaður rannsóknarinnar sem unnin er í samvinnu við Reykjalund, Hjartavernd og Landspítala – háskólasjúkrahús