Ásta María Einarsdóttir, BS í matvælafræði og lífefnafræði
„Rannsóknarverkefnið miðar að því að þróa aðferðir til að vinna lífvirk fjölfenól úr íslensku bóluþangi, mæla virkni efnanna og prófa að blanda þeim í húðvörur,“ segir Ásta María Einarsdóttir, matvæla- og lífefnafræðingur frá Háskóla Íslands. Ásta María hefur mikla trú á bóluþanginu, enda sé það gjöful uppspretta fjölfenóls, sem er náttúrulegt andoxunarefni.
Rannsóknin sem Ásta María tók þátt í var studd af Nýsköpunarsjóði námsmanna og ber hún yfirskriftina „Lífvirk fjölfenól úr bóluþangi í húðvörur og hönnun.“ Rannsóknina vann Ásta María í samvinnu við vísindamenn hjá þekkingar- og rannsóknafyrirtækinu Matís, sem vinnur að þróun og nýsköpun í matvælaiðnaði. Matís er samstarfsaðili Háskóla Íslands. Ásta María gekk til liðs við Matís sumarið 2011 og sinnti rannsóknarvinnunni undir handleiðslu vísindamanna sem höfðu hafið rannsókn á lífvirkni íslensks bóluþangs bæði fyrir matvæli og í snyrtivörur. Rannsóknir Matís sýndu fram á að bóluþangið innihéldi mikið magn fjölfenóla sem hafa mikla andoxunarvirkni.
Ásta María Einarsdóttir
Ásta María hefur mikla trú á bóluþanginu, enda sé það gjöful uppspretta fjölfenóls, sem er náttúrulegt andoxunarefni.

„Íslenskt þang, ekki síst bóluþang, hefur lengi verið talið vannýtt auðlind. Andoxunarefnin eru mikilvæg til viðhalds og verndar húðfruma. Fjölfenólin reynast hafa góða eiginleika til að bindast frjálsum hvarfeindum sem valda skemmdum á húðfrumum,“ segir Ásta María og bætir við að komnar séu skýrar vísbendingar um jákvæða virkni fjölfenóla í bóluþanginu.
„Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að nýta megi íslenska þangið til framleiðslu á lífvirkum efnum á hagkvæman hátt,“ segir Ásta María enn fremur. „Því gæti skapast hér á landi nýr og sjálfbær iðnaður tengdur framleiðslu á lífvirkum fjölfenólum unnum úr íslensku bóluþangi, með mikilli verðmætasköpun, nýjum atvinnutækifærum og auknum möguleikum á sviði rannsókna og þekkingar, enda hefur verið mikil eftirspurn eftir húðvörum sem innihalda náttúruleg efni og sem styðjast við ítarlega vísindavinnu.“ Fyrirheit eru því skýr um sjálfbæran og gjöfulan iðnað.
- Leiðbeinendur: Hörður G. Kristinsson, rannsóknastjóri Matís, og Rósa Jónsdóttir, fagstjóri hjá Matís.
- Ásta María lauk BS námi í matvælafræði og lífefnafræði vorið 2011. Hún stundar nú meistarnám í matvælafræði við Háskóla Íslands.