Erna Kristín Blöndal, doktorsnemi við Lagadeild
„Dómar Mannréttindadómstóls Evrópu og skýrslur alþjóðlegra stofnana staðfesta erfiða stöðu margra þeirra sem sækja um vernd í Evrópu. Þeir sem eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu verða oft verst úti. Ég tel brýnt að varpa ljósi á stöðu þeirra og kanna hvaða áhrif löggjöf og framkvæmd hennar hefur á þessa einstaklinga,“ segir Erna Kristín Blöndal, doktorsnemi við Lagadeild, um rannsóknir sínar.
Réttarstaða einstaklinga sem teljast vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu og koma til Evrópu, þ. á m. Íslands, til þess að sækja um alþjóðlega vernd er í forgrunni í rannsókninni. Erna kannar m.a. hvort réttarstaða þeirra samræmist alþjóðlegri og evrópskri mannréttindalöggjöf og leggur sérstaka áherslu á stöðu kvenna og barna í því samhengi.
Erna Kristín Blöndal
„Dómar Mannréttindadómstóls Evrópu og skýrslur alþjóðlegra stofnana staðfesta erfiða stöðu margra þeirra sem sækja um vernd í Evrópu. Þeir sem eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu verða oft verst úti.“

Erna þekkir vel hlutskipti flóttamanna og þeirra hælisleitenda sem eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu því að hún hefur starfað sem lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu við þessi mál. „Við þau störf vaknaði áhugi á því að rannsaka frekar málaflokkinn,“ útskýrir Erna.
Fyrstu niðurstöður rannsóknar á móttöku þeirra sem teljast vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu á Íslandi liggja fyrir. „Þær benda til þess að núgildandi löggjöf og framkvæmd hennar séu ekki fullnægjandi að öllu leyti, m.a. vegna þess að hér á landi skortir formlegt ferli til þess að greina hvort hælisleitendur falli í þennan flokk,“ segir Erna.
Hún vonast til að rannsóknin leiði í ljós hvort og þá að hvaða leyti gera þurfi breytingar á núgildandi löggjöf og framkvæmd hennar hér á landi og í Evrópu og hvernig hægt sé að tryggja hámarksvernd þeirra umsækjenda sem teljast vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu.
Leiðbeinandi: Páll Sigurðsson, prófessor við Lagadeild.