Skip to main content

Vandaðir fjölmiðlar styrkja lýðræðið

Grétar Júníus Guðmundsson, doktorsnemi í hagnýtri siðfræði

„Það var mikið reiðarslag fyrir mig sem viðskiptablaðamann að lesa skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Við töldum að við værum að gera vel en uppgötvuðum að svo var ekki,“ segir Grétar Júníus Guðmundsson, doktorsnemi í hagnýtri siðfræði, um kveikjuna að doktorsrannsókn sinni sem snýr að lýðræðislegu hlutverki fjölmiðla. 

Í MA-ritgerð sinni fjallaði hann um þátt íslenskra fjölmiðla í hruni bankanna. „Ástæða þess að mig langaði að taka þetta lengra var sú að ég fór að velta fyrir mér hvort eitthvað hefði lagast hjá fjölmiðlunum í kjölfarið. Ég er efins um að svo sé og tel að það væri hægt að gera betur. Það vantar enn þá þessa gagnrýnu hugsun á fjölmiðlana, að menn taki sig á og skoði málin ofan í kjölinn. Þess vegna fór ég að skoða þetta út frá lýðræðinu,“ útskýrir Grétar.

Grétar Júníus Guðmundsson

Grétar segir að styrkja þurfi íslenska fjölmiðla. „Fyrir örfáum árum sögðu margir að Netið myndi ryðja öllum öðrum fjölmiðlum úr vegi. Ég held að það muni alls ekki gerast.“

Grétar Júníus Guðmundsson

Grétar segir að styrkja þurfi íslenska fjölmiðla. „Fyrir örfáum árum sögðu margir að Netið myndi ryðja öllum öðrum fjölmiðlum úr vegi. Ég held að það muni alls ekki gerast. Það verður alltaf þörf fyrir faglegt fjölmiðlafólk, sama hvað fjölmiðillinn heitir og í hvaða formi hann er,“ segir hann. 

„Hvorki hér né annars staðar hefur lýðræðislegt hlutverk fjölmiðla verið skoðað út frá heimspeki og hagnýtri siðfræði, að því er ég best veit. Hagnýti þátturinn gæti verið sá að bent yrði á hvar hætturnar liggja. Þar má til að mynda nefna skort á gagnrýni, áhrifamátt auglýsenda, eignarhald viðkomandi fjölmiðla, hvernig blaðamenn nota tungumálið og ýmislegt fleira,“ útskýrir Grétar. 

Mikið hefur verið ritað um lýðræðislegt hlutverk fjölmiðla. „En það hefur ekki verið gert hvað varðar Ísland og ekki á þennan hagnýta hátt. Það er það nýja í þessu,“ segir Grétar og bætir við: „Ég vona að útkoman hjá mér verði greinargóð kortlagning á lýðræðislegu hlutverki fjölmiðlanna svo að við getum betur gert okkur grein fyrir því hversu mikilvægt hlutverkið sem þeir gegna í samfélaginu er og nauðsyn þess að við höfum vandaða fjölmiðla sem styrkja lýðræðið.“ 

„Ég hef hugsað mér að reyna að setja ritgerðina upp á hagnýtan hátt svo að útkoman verði hugsanlegir valkostir. Markmiðið er að geta sagt hvernig staðan er í þessum málum hjá okkur nú og hvað gæti þurft að breytast,“ segir Grétar Júníus að lokum. 

Leiðbeinandi: Vilhjálmur Árnason, prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild.