Gestur Guðmundsson, prófessor við Uppeldis- og menntunarfræðideild
„Ein alvarlegasta afleiðing efnahagshrunsins á Íslandi er fjöldaatvinnuleysi. Það er mest meðal ungs fólks og þeirra sem ekki hafa lokið námi á framhaldsskólastigi. Þriðjungur fólks á atvinnualdri hefur ekki lokið framhaldsnámi og helmingur allra atvinnulausra hefur ekki lokið slíku námi. Tveir þriðju atvinnulausra á aldrinum 20 til 30 ára hafa ekki lokið framhaldsnámi.“
Þetta segir Gestur Guðmundsson, prófessor við Menntavísindasvið, um rannsókn sína. Í henni kannar Gestur áhrif atvinnuleysisúrræða Vinnumálastofnunar á virkni þátttakenda og hvort úrræðin vísi að einhverju leyti veginn til námsúrræða sem draga verulega úr brotthvarfi úr framhaldsskóla.
Gestur Guðmundsson
„Ein alvarlegasta afleiðing efnahagshrunsins á Íslandi er fjöldaatvinnuleysi. Það er mest meðal ungs fólks og þeirra sem ekki hafa lokið námi á framhaldsskólastigi.“

„Vinnumálastofnun stofnaði til verkefnisins „Ungt fólk til athafna“ sem tekur til fjölbreyttra úrræða til að mæta þessum vanda í framhaldsskólum, í símenntun, á vinnumarkaði og í sjálfboðastarfi. Frá ársbyrjun 2010 hefur allt ungt fólk, sem verið hefur atvinnulaust þrjá mánuði eða lengur, verið kallað til viðtals á vinnumiðlun og boðin þátttaka í einhverju slíku úrræði,“ segir Gestur. Hann bætir við að mörg ungmenni hafi verið orðin svo óvirk eftir langvinnt atvinnuleysi að þeim hafi verið beint á sérstök virkninámskeið áður en þeim er ráðlagt að leggja til atlögu við nám eða starfsþjálfun.
Gestur segir verkefnið „Ungt fólk til athafna“ hafa náð til yfirgnæfandi meirihluta ungra atvinnulausra á árinu 2010 og miðað við stærð þjóðarinnar séu aðgerðirnar einhverjar þær viðamestu í heiminum. Þar er fitjað upp á mörgum nýjum menntunar- og starfsþjálfunarúrræðum og önnur eru notuð á nýjan hátt. Úrræðin hafa ekki einungis þýðingu gegn atvinnuleysi heldur fela þau líka í sér tilraunir til að mæta þörfum þess stóra hóps ungs fólks sem horfið hefur frá framhaldsnámi á síðustu árum.
„Á vormisseri 2010 hrinti ég af stað rannsókninni á atvinnuleysisúrræðum í þessu verkefni. Vinnumálastofnun hafði þá ákveðið að gera megindlega könnun meðal þátttakenda, svo að ég valdi að hefja rannsókn mína með vettvangsathugunum á fjórum mismunandi úrræðum og með eigindlegum viðtölum við þátttakendur,“ segir Gestur. Hann skoðar vinnubrögð, samskipti og áhrif úrræðanna á líðan, virkni og hæfni þátttakenda. Í ársbyrjun 2012 verður síðan kannað hvar ungmenni sem þátt tóku í atvinnuleysisúrræðum eru stödd í námi, vinnu eða í atvinnuleit. Valið úrtak verður fengið til að meta áhrif úrræðanna.