Bergþóra Aradóttir, MS frá Viðskiptafræðideild
Viðskipti Íslendinga við Kínverja hafa aukist mjög á síðustu árum enda er kínverski markaðurinn gríðarlega stór og hagvöxtur hefur haldist þar kröftugur þótt harðnað hafi á dalnum í Evrópu. Í samskiptum við aðrar þjóðir reynir mjög á færni í erlendum tungumálum en þó ekki síst á menningarlæsi sem hefur veruleg áhrif á samninga og langtímaviðskipti.
Bergþóra Aradóttir, MS í stjórnun og stefnumótun, hefur í meistaraverkefni sínu rannsakað upplifun og reynslu íslenskra stjórnenda af viðskiptum í Kína. „Rannsóknin fjallar meðal annars um upplifun stjórnendanna af áhrifum hefðbundinnar kínverskrar menningar og nútímavæðingar á viðskiptaumhverfið,“ segir Bergþóra, sem margir gætu munað eftir úr kvikmyndinni Stikkfrí eftir Ara Kristinsson sem sló í gegn árið 1997.
Bergþóra Aradóttir
Bergþóra hefur í meistaraverkefni sínu rannsakað upplifun og reynslu íslenskra stjórnenda af viðskiptum í Kína. „Rannsóknin fjallar meðal annars um upplifun stjórnendanna af áhrifum hefðbundinnar kínverskrar menningar og nútímavæðingar á viðskiptaumhverfið.“

Bergþóra segir margt benda til þess að upp- lifun og reynsla íslenskra stjórnenda af viðskiptum í Kína sé að miklu leyti í samræmi við fyrirliggjandi rannsóknir á kínverskri menningu og viðskiptaum - hverfi. Hún segir að niðurstöður rannsóknarinnar bendi til að konfúsísk gildi, svo sem mikilvægi sambanda, virðing fyrir stigveldi, ágreiningsfælni og áhersla á heiður og orðspor, séu enn áberandi í Kína þrátt fyrir síbreytilegt umhverfi vegna mikils hagvaxtar og hraðrar nútímavæðingar. „Þó má ekki gleyma því að viðskipti eru auðvitað alltaf við - skipti,“ segir Bergþóra.
„Niðurstöðurnar benda einnig til að helsta vandamálið fyrir ókunnuga, við að koma inn í kínverskt viðskiptaumhverfi, sé tortryggni gagn- vart ókunnugum og skilningsskortur beggja á menningu hins. Auk þess kom fram ólík nálgun við samningagerð, mikilvægi gæðaeftirlits við fram- leiðslu og skortur starfsmanna á frumkvæði og vilja til að axla ábyrgð.“
Bergþóra segir áhugavert hvað tiltölulega mörgum íslenskum fyrirtækjum hafi tekist að hasla sér völl í Kína þrátt fyrir mikinn menningarmun. „Rannsóknin gæti hjálpað þeim sem á eftir koma, og eru að taka sín fyrstu skref í viðskiptum við Kína, að nýta sér reynslu þeirra sem á undan hafa farið.“
Aðspurð um hvaðan kveikjan að þessu viðfangsefni sé komin segir Bergþóra að sig hafi langað til þess að tvinna saman menntun sína í Austur-Asíufræðum annars vegar og í stjórnun og stefnumótun hins vegar. „Það lá beinast við að rannsóknin viki að samskiptum við Kína vegna þess að ég hef brennandi áhuga á kínverskri menningu og samfélagi og finnst Kína mjög spennandi eftir að hafa búið í Ningbo í eitt ár sem skiptinemi,“ segir Bergþóra.
Leiðbeinandi: Ingjaldur Hannibalsson, prófessor við Viðskiptafræðideild.