Skip to main content

Uppáhaldsfíkniefni sprautufíkla á Íslandi

Guðrún Dóra Bjarnadóttir, doktorsnemi í líf- og læknavísindum

„Íslendingar nota einna mest af methýlfenídati á heimsvísu,“ segir Guðrún Dóra Bjarnadóttir, doktorsnemi í líf- og læknavísindum og deildarlæknir á geðsviði Landspítala – háskóla- sjúkrahúss, sem rannsakar þetta sérstaka efni. 

Efnið er í daglegu tali kallað rítalín sem í raun er aðeins ein tegund lyfja sem innihalda virka efnið metýlfenídat en það örvar miðtaugakerfið. Læknar ávísa rítalíni í töfluformi til að slá á einkenni hjá þeim sem þjást af athyglisbresti og ofvirkni. „Reynsla fagfólks á fíknisviði benti til þess að methýlfenídat væri misnotað á meðal sprautufíkla á Íslandi en lítið er til af rannsóknum um þess konar misnotkun,“ segir Guðrún Dóra um tildrög rannsóknarinnar.

Guðrún Dóra Bjarnadóttir

Tilgangur rannsóknarinnar er að athuga tíðni, umfang og einkenni methýlfenídat-misnotkunar í æð hjá íslenskum vímuefnaneytendum.

Guðrún Dóra Bjarnadóttir

Tilgangur rannsóknarinnar er að athuga tíðni, umfang og einkenni methýlfenídat-misnotkunar í æð hjá íslenskum vímuefnaneytendum. Lýst verður neyslu sprautunotenda, t.d. skammtastærðum og hversu oft á dag þeir sprauta sig, af hverju þeir taka methýlfenídat fram yfir önnur efni og hvernig víman af methýlfenídati er miðað við önnur örvandi efni. Einnig verða hliðarverkanir og fráhvarfseinkenni methýlfenídat-neyslu könnuð. 

Guðrún segir brýna þörf á rannsóknum á misnotkun á methýlfenídati í æð. „Enn sem komið er virðist vandamálið, í svona miklum mæli, vera einskorðað við Ísland og við erum því í kjöraðstöðu til að rannsaka viðfangsefnið. Methýlfenídat-neysla í æð er algeng á Íslandi en 88% þátttakenda í rannsókninni höfðu notað efnið undanfarna 30 daga. Methýlfenídat er það efni sem sprautufíklar nota mest og velja frekar en önnur efni,“ segir Guðrún. 

„Þekking á þessu vandamáli er bæði nauðsyn- leg fyrir Íslendinga og aðrar þjóðir. Rannsóknin er mikilvæg fyrir sjúkdóma á borð við HIV og lifrarbólgu C og hún kemur til með að auka þekkingu og skilning heilbrigðisstarfsfólks á vandamáli þeirra sem þróa með sér fíkn í örvandi lyf og það mun svo skila sér í betri og skilvirkari meðferð,“ segir Guðrún að lokum. 

Leiðbeinendur: Andrés Magnússon, klínískur prófessor við Læknadeild, og Magnús Haraldsson, dósent við Læknadeild.