Arndís Vilhjálmsdóttir, doktorsnemi við Sálfræðideild
„Almennt er talið að atvinnuleysi hafi slæm áhrif á líðan fólks og að þessi vanlíðan hafi þau áhrif að fólk vilji ekki vera atvinnulaust. Þannig er í raun gert ráð fyrir að vanlíðanin sé hvetjandi fyrir þá atvinnulausu til að leita sér að vinnu,“ segir Arndís Vilhjálmsdóttir, doktorsnemi í sálfræði, sem kannað hefur áhrif atvinnuleysis á mismunandi aldurshópa.
Rannsóknin er hluti af doktorsverkefni hennar en þar leitar hún svara við því hvað hvetji fólk áfram í vinnunni. „Þessi rannsókn er einn angi af því viðfangsefni og snýst í raun um spurninguna „af hverju ætti fólk að vilja vinna yfir höfuð?“,“ útskýrir Arndís.
Arndís Vilhjálmdóttir
„Almennt er talið að atvinnuleysi hafi slæm áhrif á líðan fólks og að þessi vanlíðan hafi þau áhrif að fólk vilji ekki vera atvinnulaust. Þannig er í raun gert ráð fyrir að vanlíðanin sé hvetjandi fyrir þá atvinnulausu til að leita sér að vinnu.“

Arndís bendir á að töluvert atvinnuleysi sé meðal ungs fólks, bæði á Íslandi og í öðrum löndum sem Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) nær til, en atvinnuleysi fer minnkandi eftir því sem fólk verður eldra. „Ég skoðaði hvort munur væri á neikvæðum áhrifum atvinnuleysis eftir aldri, sem gæti þá mögulega verið hluti af skýringunni á því hvers vegna atvinnuleysishlutfall meðal ungs fólks er hærra en meðal hinna eldri,“ segir Arndís.
Niðurstöður Arndísar benda til þess að líðan ungra atvinnulausra í OECD-ríkjunum sé betri en þeirra sem eldri eru. „Þegar horft er á Ísland eingöngu er þennan mun aftur á móti ekki að finna. Reyndar fannst enginn munur á líðan atvinnulausra og þeirra sem eru í vinnu á Íslandi í þessari rannsókn minni,“ segir Arndís og bendir á að rannsaka þurfi betur hvers vegna svo sé.
Leiðbeinandi: Fanney Þórsdóttir, lektor við Sálfræðideild.