Guðný Björk Eydal, prófessor við Félagsráðgjafardeild
Þegar Ísland fór með formennsku í norrænu ráðherranefndinni var lögð áhersla á jafnréttismál og m.a. var norrænum fræðimönnum veittur styrkur til að rannsaka samspil umönnunarstefnu og kynjajafnréttis á Norðurlöndum.
Rannsókninni var stýrt af íslenskum fræðimönnum við Háskóla Íslands, þeim Guðnýju Björk Eydal, prófessor við Félagsráðgjafardeild, og Ingólfi V. Gíslasyni, dósent í félagsfræði. Niðurstöður birtust m.a. í bókinni Parental leave, childcare and gender equality in the Nordic countries sem Ingólfur og Guðný ritstýrðu.
Guðný Björk Eydal
„Til dæmis eru Ísland og Noregur einu löndin sem veita feðrum sjálfstæðan rétt til þriggja mánaða fæðingarorlofs,“ segir Guðný Björk um niðurstöðurnar. „Í heild er opinber stuðningur vegna umönnunar barna minni hérlendis og því þurfa foreldrar að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla.“

„Rannsóknin leiðir í ljós að það er talsverður munur á umönnunarstefnu Norðurlandanna, t.d. eru Ísland og Noregur einu löndin sem veita feðrum sjálfstæðan rétt til þriggja mánaða fæðingarorlofs,“ segir Guðný Björk um niðurstöðurnar. „Í heild er opinber stuðningur vegna umönnunar barna minni hérlendis og því þurfa foreldrar að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Í Danmörku fá börn leikskólapláss mun fyrr en hér gerist og í Svíþjóð er fæðingarorlofið lengra. Í Finnlandi og Noregi eru greiddar sérstakar umönnunargreiðslur sem foreldrar geta notað til að vera heima með börn sín eða greitt öðrum fyrir að gæta þeirra. Slíkar greiðslur hafa verið mjög umdeildar og á það hefur verið bent að þær getið unnið gegn jafnrétti kynjanna og haft neikvæð áhrif á þau börn sem hafi sérstaka þörf fyrir leikskólavist.“ Bókin er gefin út prentuð og er einnig aðgengileg á veraldarvefnum.