Skip to main content

Tvískinnungur mannsins

Gunnar Theodór Eggertsson, doktorsnemi í bókmenntafræði

„Vestrænt samfélag reynir að afsaka það að vilja bæði elska dýr og éta. Þessi tvískinnungur vekur áhuga minn,“ segir Gunnar Theodór Eggertsson doktorsnemi í bókmenntafræði, sem vinnur út frá manndýrafræði, tiltölulega nýrri fræðigrein.

Gunnar Theodór Eggertsson

„Vestrænt samfélag reynir að afsaka það að vilja bæði elska dýr og éta. Þessi tvískinnungur vekur áhuga minn.“

Gunnar Theodór Eggertsson

„Manndýrafræðin er framhald á dýrasiðfræðinni og blandar henni í raun saman við aðrar greinar eins og menningarfræði, dýrafræði og félagsfræði, þar sem dýr eru skoðuð í samhengi við mannfólk og borgarsamfélagið, en ekki aðeins sem hluti af villtri náttúru," segir Gunnar og bendir á fjarlægðina við dýrin í daglegu lífi okkar, þrátt fyrir að við séum samtímis umkringd þeim á alla kanta.

„Hvað gerir líf eins dýrs verðugt en ekki annars? Hvað réttlætir arðrán okkar á öðrum dýrategundum og hvað kemur í veg fyrir að við beitum sömu valdníðslu gegn mannfólki? Er yfir höfuð nokkur munur þar á? Ég vil afbyggja þessa hugmynd mannsins um að við sitjum á hásæti ofar öllu öðru lífríki og eigum rétt til yfirráða einungis vegna meiri máttar. Darwin var fyrir löngu búinn að brúa gjána sem fólk trúði að fyrirfyndist á milli manna og dýra, en engu að síður lítur samfélagið enn á dýr fyrst og fremst út frá notagildi þeirra í þágu mannkyns, en ekki sem sjálfstæðar lífverur. Hvers vegna og hvernig þessi hugsun heldur velli eru lykilspurningar í mínum fræðum."

Leiðbeinandi: Guðni Elísson, dósent við Íslensku- og menningardeild.