Skip to main content

Svampar sem hemja bólgur

„Í megindráttum er ég að leita að lyfjasprotum í sjávarhryggleysingjum með ónæmisstýrandi virkni sem gætu reynst áhugaverðir til lyfjaþróunar,“ segir Ása Bryndís Guðmundsdóttir doktorsnemi. Hún skoðar mest sjávarsvampa við Íslandsstrendur og metur hvort þeir hafi ónæmisstýrandi áhrif og slái m.a. á bólgur. Bólga er varnarsvar líkamans, meðal annars við sýkingum og truflun á ónæmiskerfinu, og getur t.d. birst í formi svokallaðra sjálfsofnæmissjúkdóma. Ása Bryndís prófar virkni efna úr svömpunum á svokallaðar angafrumur en þær gefa sérhæfð boð um að hefja virkni gegn sjúkdómsvöldum sem orsaka bólgurnar. „Angafrumurnar gegna þannig lykilhlutverki í ónæmissvari líkamans og því er rökrétt að rýna í áhrif efnanna á þær,“ segir Ása Bryndís.

Ása Bryndís Guðmundsdóttir

„Í megindráttum er ég að leita að lyfjasprotum í sjávarhryggleysingjum með ónæmisstýrandi virkni sem gætu reynst áhugaverðir til lyfjaþróunar.“

Ása Bryndís Guðmundsdóttir

Sökum erfiðs aðgengis að undirdjúpunum er lífríki sjávar minna rannsakað en svæði á þurru landi. „Líffræðilegur fjölbreytileiki við Íslandsstrendur hefur nánast ekkert verið rannsakaður m.t.t. efnainnihalds en rannsóknir á efnaauði sjávar hafa þó færst mikið í aukana að undanförnu. Aukinn skilningur á „efnavopnum“ sjávarlífvera er afar áhugavert innlegg í þekkingu okkar á lífríkinu.“ 

Rannsóknaverkefnið sjálft bauð upp á heilmikið ævintýri fyrir nýútskrifaðan lyfjafræðing en sumir þeirra sem komu að verkefninu lærðu sérhæfða rannsóknaköfun. „Að einangra virk efni úr sjávarlífverum, sem gætu hugsanlega orðið lyfjasprotar framtíðarinnar, er magnað og sömuleiðis að fá tækifæri til að sökkva sér ofan í heillandi heim ónæmisfræðinnar.“ 

Ása Bryndís segir að enn sé verið að taka fyrstu skrefin í þessu viðamikla verkefni en þó sýna fyrstu niðurstöður að ýmis efni úr lífverum
á sjávarbotni hafi mjög spennandi áhrif á angafrumurnar. „Efnin gætu hugsanlega nýst við að hemja bólgur eða bæla ónæmiskerfi líkamans en bólgur í líkamanum eru nú álitnar hafa mun stærra hlutverk í meinþróun margra sjúkdóma en áður var talið. Ný lyf til að hemja eða tempra ónæmissvar gætu því augljóslega komið að notum í meðferð við mörgum sjúkdómum, ekki síst sjálfsofnæmissjúkdómum.“ 

Leiðbeinendur: Sesselja S. Ómarsdóttir, dósent við Lyfjafræðideild, og Jóna Freysdóttir, prófessor við Læknadeild.