Sandra María Sævarsdóttir, meistaranemi í stjórnun og stefnumótun við Viðskiptafræðideild
Niðurstöður alþingiskosninga hafa lengi verið rannsóknarefni í stjórnmálafræði. Þær er þó hægt að skoða út frá fleiri sjónarhornum og það gerði Sandra María Sævarsdóttir, meistaranemi í stjórnun og stefnumótun við Viðskiptafræðideild, sem kannaði hver tengslin væru milli ímyndar stjórnmálaflokkanna á Íslandi og árangurs þeirra í þingkosningunum 2013.
„Ég skoðaði hvort faglegt markaðsstarf tengdist samkeppnishæfni og árangri en það er þekkt sjónarmið úr vörumerkjastjórnun að til að ná árangri þurfi ímynd vörumerkis að hafa sterka, jákvæða og einstaka stöðu í huga eða minni markhóps. Ég kannaði hvort þetta sjónarmið ætti við um stjórnmálaflokka og hvort niðurstöður rannsóknarinnar gæfu vísbendingu um niðurstöðu kosninganna,“ segir Sandra María.
Sandra María Sævarsdóttir
Sandra kannaði hver tengslin væru milli ímyndar stjórnmálaflokkanna á Íslandi og árangurs þeirra í þingkosningunum 2013.

Hugmyndin að rannsókninni kom frá leiðbeinanda Söndru, Þórhalli Guðlaugssyni, en sams konar rannsókn var gerð í aðdraganda þingkosninganna 2007. „Okkur fannst tilvalið að skoða staðfærslu stjórnmálaflokkanna í kjölfar alþingiskosninganna vorið 2013, ekki síst hvort faglegt markaðsstarf flokkanna tengdist samkeppnishæfni og árangri og hvort stjórnmálaflokkarnir hefðu skýra aðgreiningu hver frá öðrum,“ segir Sandra María enn fremur.
Rannsóknin leiddi í ljós að góð staðfærsla og ímynd stjórnmálaflokka hefur jákvæð áhrif á árangur þeirra. „Stjórnmálaflokkar nýta sér í auknum mæli faglegt markaðsstarf til þess að ná betri árangri. Niðurstöður rannsóknarinnar styðja einnig þá staðreynd að til þess að ná árangri þurfi stjórnmálaflokkar að hafa sterka, jákvæða og einstaka stöðu í huga eða minni markhópsins, kjósendanna,“ segir Sandra María og bætir við að rannsóknin hafi gefið vísbendingar um niðurstöður alþingiskosninganna 2013.
„Ef stjórnmálaflokkar nýta sér faglegt markaðsstarf til þess að ná betri árangri þá eru þeir um leið að vinna að málefnum sem skipta kjósendur mestu máli, ásamt því að bæta langtímasamband sitt við þá,“ bendir Sandra María á að lokum.