Skip to main content

Staðalmyndir í barnaefni hafa áhrif

Þórdís Þórðardóttir, lektor við Uppeldis- og menntunarfræðideild

Staðalmyndir í barnaefni virðast hafa áhrif á hugmyndir barna um stöðu kynjanna. Það birtist meðal annars í samræðum og leik barnanna þar sem þau endurskapa inntak barnaefnisins. Þetta er meðal þess sem fram kemur í rannsóknum sem Þórdís Þórðardóttir, lektor við Uppeldis- og menntunarfræðideild, hefur unnið að undanfarin ár.

Rannsóknirnar eru hluti af doktorsverkefni Þórdísar í uppeldis- og menntunarfræði. „Kveikjan liggur í menningarlæsisrannsóknum Guðnýjar Guðbjörnsdóttur, leiðbeinanda míns, og Sergios Morra en þau hafa rannsakað menningarlæsi grunnskólabarna, unglinga, ungmenna og fullorðinna á Íslandi frá því um 1990,“ segir Þórdís. Þar sem engar rannsóknir höfðu verið gerðar hér á landi á menningarlæsi leikskólabarna taldi Þórdís mikilvægt að bæta úr því.

Þórdís Þórðardóttir

Í rannsókninni kannaði Þórdís meðal annars hvernig 4 til 5 ára börn ræddu um barnabókmenntir og afþreyingarefni, hvers konar barnaefni væri notað á heimilum þessa aldurshóps ásamt því að kanna hvernig jafningjar 14 barna brugðust við tilvísunum þeirra í barnaefni.

Þórdís Þórðardóttir

Í rannsókninni kannaði hún meðal annars hvernig 4 til 5 ára börn ræddu um barnabókmenntir og afþreyingarefni, hvers konar barnaefni væri notað á heimilum þessa aldurshóps ásamt því að kanna hvernig jafningjar 14 barna brugðust við tilvísunum þeirra í barnaefni.

Meðal þess sem fram kemur í niðurstöðum Þórdísar er að í samræðum um barnaefni flokkuðu börnin efnið til dæmis í stelpu- eða strákaefni eftir því hvort það innihélt hetjudáðir eða tengsl. „Þá tengdu börnin hetjudáðir við karlmennsku en þær nutu meiri virðingar beggja kynja en tengsl, sem börnin tengdu kvenleika. Þau virtust lifa í strangt aðskildum heimi sem ákvarðast af staðalmyndum í afþreyingarefni og flest þeirra byggðu upp kynjuð viðhorf til reglna og siða samfélagsins,“ segir Þórdís.

Í niðurstöðum rannsóknarinnar kom einnig fram að börn sem fengu tækifæri til að velta fyrir sér áreiðanleika staðalmyndanna höfðu fjölbreyttari sjónarhorn í farteskinu en þau börn sem síður höfðu þann möguleika. „Leikskólakennarar þurfa að geta greint áhrif staðalmynda kynjanna í barnaefni á nám leikskólabarna. Þannig búa þeir börn undir virka þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi eins og boðið er í lögum um leikskóla og sinna þeirri jafnréttisfræðslu sem kveðið er á um í lögum um jafna stöðu kvenna og karla,“ segir Þórdís.