Skip to main content

Spennandi og gaman að aka utan vega!

Kristín Þóra Jökulsdóttir, meistaranemi í umhverfis- og auðlindafræði

„Ég hef starfað sem landvörður á sumrin og í því starfi verður maður mikið var við utanvegaakstur. Hann hefur umtalsverð áhrif á umhverfið eins og fram kemur í lokaritgerðinni minni,“ segir Kristín Þóra Jökulsdóttir, sem lauk meistaraprófi í umhverfis- og auðlindafræði haustið 2012. Í ritgerðinni kannaði hún viðhorf og ástæður fyrir utanvegaakstri.

„Rannsóknin er megindleg viðhorfsrannsókn á akstri utan vega hér á landi en ég skilgreini utanvegaakstur sem akstur utan vega og slóða þar sem ekki hefur verið ekið áður. Markmiðið var að komast að því hvert viðhorf Íslendinga til utanvegaaksturs sé og hvers vegna hann á sér stað,” útskýrir Kristín Þóra.

Kristín Þóra Jökulsdóttir

„Ég hef starfað sem landvörður á sumrin og í því starfi verður maður mikið var við utanvegaakstur. Hann hefur umtalsverð áhrif á umhverfið eins og fram kemur í lokaritgerðinni minni.“

Kristín Þóra Jökulsdóttir

Aðspurð um niðurstöður rannsóknarinnar segir Kristín Þóra það eftirtektarvert að algengustu ástæður utanvegaaksturs séu þær að fólki finnist það spennandi og gaman að aka utan vega. „Enn fremur kemur fram að yfir 60% Íslendinga hafa séð einhvern aka utan vega, um helmingur þekkir einhvern sem hefur gert það og þriðjungur hefur gert það sjálfur.“

Hún segir utanvegaakstur valda miklu tjóni á náttúrunni. „Það er mjög mikilvægt að koma í veg fyrir utanvegaakstur, ekki síst á landi eins og Íslandi þar sem jarðvegur og gróður er mjög viðkvæmur og því er auðvelt að valda tjóni sem tekur jafnvel áratugi að bæta.“

Kristín Þóra segir rannsóknina hafa mikið gildi. „Þessi rannsókn er sú fyrsta sinnar tegundar hérlendis og þetta er því alveg ný þekking. Vonandi geta upplýsingarnar nýst til stefnumörkunar en niðurstöðurnar sýna helst fram á mikilvægi þess að fræða almenning um skaðsemi utanvegaaksturs,“ segir Kristín Þóra að lokum.

Leiðbeinendur: Rannveig Ólafsdóttir og Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósentar við Líf- og umhverfisvísindadeild.